Það er búið að vera mikið að gerast í leikskólanum þessa dagana. Í síðustu viku vorum við á Lundi að baka smákökur en í næstu viku ætlum við að bjóða foreldrum okkar að koma og smakka á kökunum.
Á þriðjudaginn kom leikrit í leikskólann sem heitir smiður jólasveinsins og var rosalega gaman að horfa á það. Sumir af yngstu krökkunum urðu hrædd og þurftu að fara inn á deild en ekki ég ![]()
Á miðvikudaginn fóru svo nokkrir krakkar af minni deild á bókasafnið með strætó. Það var nú heldur betur fjör því mér finnst svo gaman að fara í strætó. Á bókasafninu var lesin saga um Snuðru og Tuðru, sem var mjög skemmtileg og fórum við síðan í leikskólann aftur með strætó.
Annars er ekki mikið meira að frétta af mér í bili því ég geri lítið annað þessa dagana en að hlusta á Nylon diskinn. Mamma þarf að kveikja á honum á morgnana þegar ég vakna og líka eftir leikskóla þannig að ég ver mestum mínum tíma í eldhúsinu að dansa og syngja (enda kann ég allan diskinn nær utanað).
Jæja ég bið að heilsa að sinni.
Kveðja, Eva Þórey









Nýlegar athugasemdir