Færslur frá höfundi

Hún á afmæli í dag

Helena á afmæli í dag og næstu 8 mánuði verðum við jafngömul, svo verð ég aftur ári eldri :)

Ég keypti afmælisgjöfina á fimmtudaginn í síðustu viku, massa flotta Didriksons úlpu, og gat ekki beðið til dagsins í dag með að afhenda hana; svona er bráðlætið!

Í gær vorum við með kruðerí með kaffinu og fengum góða gesti heim. Kvöldinu var svo eytt í kvikmyndagláp.

Við keyptum lambalæri með fínum afslætti í Bónus á laugardaginn sem verður eldað í tilefni dagsins – ég hlakka afskaplega mikið til kvöldsins ;)

Fékk sér göt í eyrun – myndir

Ásdís Karen (4), sleppti fram af sér beislinu á laugardaginn var og lét gata á sér eyrun. Í samtali við vefritara sagðist Ásdís Karen hafa verið í “flippuðu stuði” og ákvað að kýla á þetta. “Pabbi bauð mér upp á þetta svo þetta var eiginlega no-brainer”, bætti Ásdís kampakát við.

Bæði eyrun voru götuð samtímis og það var ekki fyrr en Ásdís fékk grænt ljós frá mömmu sinni að hún veitti sársaukanum útrás með tárum. Hún stóð sig samt eins og hetja.

Jíha!

Það spáir hlýindum og rigningu næstu dagana.

Ég er afskaplega sáttur við að losna við fátans snjóinn.

Búsetuafmæli

Í dag eru fimm ár síðan við fluttum úr ys höfuðborgarinnar í sveitasæluna hér í Ölvezinu. Við ætluðum upphaflega að flytja þann 5., sem var laugardagur, en fengum óvænt góðan flutningabíl til afnota á föstudeginum. Mig minnir það hafi tekið um 3 tíma að sópa út úr Reykási 41 inn í bílinn, skottast yfir Þrengslin og henda úr bílnum inn í bílskúrinn hér í Ölvezborg.

Hér hefur okkur liðið vel allan tímann og viljum hvergi annnars staðar vera. Í bili að minnsta kosti…

Fimleikamót #2

Eva Þórey keppti á sínu öðru fimleikamóti á einum mánuði. Þetta var byrjendamót sem íþróttafélagið hér í Ölvezinu, Þór, hélt.

Ekki fékk hennar hópur verðlaun í þetta sinn en ég er iðinn við að segja henni að sé hún dugleg að æfa komi árangurinn í ljós; fyrr en síðar.

Umfram allt hafði hún virkilega gaman að þessu.

Og þá kom snjórinn

Ullabjakk.

Ég var með þá barnalegu óskhyggju að það kæmi ekki meiri snjór í vetur. Það gekk ekki eftir.

Færðin á milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur var svo sem ekkert til að kvarta yfir, hún var hins vegar verri inni í þorpinu. Nú þarf Helena að böðlast á Fabiunni með stelpurnar í leikskóla og skóla en sem betur fer er sá bíll nokkuð seigur.

Það verður víst skafrenningur og snjókoma í allan dag. Vona ég verði ekki veðurtepptur í borginni.

Lýðnetið

Hafir þú einhvern tímann leitt hugann að því hvernig lýðnetið (internetið) varð til ætti þetta myndband að varpa einhverju ljósi á það.

Myndbandið var að minnsta kosti ágætis upprifjun fyrir mig.

YouTube Preview Image

Viku síðar

Námskeiðið var fantagott. Platt er fínn kennari og fyrirtaks fyrirlesari. Fór í hádeginu síðastliðinn miðvikudag á fyrirlesturinn Why Software Sucks sem hann hélt á Grand Hótel – margt fróðlegt sem kom þar fram og oftar en einu sinni setti ég höku í bringu og viðurkenndi í hljóði augljós mistök.

Prism + WPF fara saman eins og camenbert og sulta; gin og tónik – ég fæ þó ekki að nota þetta í vinnunni alveg á næstunni, verð að láta mér nægja að fikta í þessu á kvöldin heima.

Held ég hafi staðið mig með ágætum á konudaginn. Konan og dæturnar fengu allar glaðning, ég  úrbeinaði lambahrygg og eldaði í hádeginu og bakaði súkkulaðiköku með kaffinu seinnipartinn (Betty Crocker að vísu en hey, telst samt!). Einu vonbrigðin þennan daginn var ekki hægt að rekja til mín ;o)

Endurmenntaður

Í dag og  næstu tvo daga verð ég á námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. David Platt, prófessor við Harvard háskóla, ætlar að kenna mér og einhverjum öðrum Programming Microsoft Prism, the Composite Application Library.

Prism er hlutasafn fyrir WPF (Windows Presentation Foundation) og Silverlight, fókusinn hjá mér verður á WPF-ið.

Hef áður fiktað við Prism og WPF en það fikt nær þó frekar grunnt – vonast til að vinna mér inn svartabeltið á námskeiðinu. Tæknilostinn er í það minnsta geypilegur.

Réttlæting

Þegar það er bolludagur, þá er fullkomlega eðlilegt að borða rjómabollur í kvöldmat.

Eða er það ekki?

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE