Færslur frá höfundi
Öskudagur
Eva Þórey og Dagrún Inga voru Gana-konur

Ásdís Karen var Solla Stirða og Bergur Ómar sjóræningi

Hlutverkaleikur
Ég var að þrífa inn í eldhúsi í gær og þá kemur Eva Þórey til mín og bankar á ísskápinn. Hún er oft í hlutverkjaleikjum og oftar en ekki fæ ég lítið hlutverk. Í þetta skipti var hún að banka hjá mér því ég var dagmamman sem átti að passa barnið hennar. Ég tek við barninu og set það við eldhúsborðið og held áfram að þrífa. Svo auðvitað er ég dottin út úr leiknum og fer að þrífa inn í svefnherbergi…kemur ekki Eva Þórey askvaðandi með miða í höndunum og setur í rassvasann hjá mér og segir: Þú skalt sko lesa þennan miða.
Á miðanum stóð:
akverju fórstu frá barninu mínu
seigðu já eða nei
kígdu hinumeigin
ég kíki hinu megin á miðann og þar stóð:
kvar ertu
kveðja
Silíja 
Ég sem sagt steingleymdi barninu sem ég átti að vera að passa og Eva Þórey var nú ekki par hrifin. Þannig að það er spurning hvort ég sé á réttri hillu starfslega séð…hehehe
Ég held ég fái alla vega ekki að passa dúkkurnar hennar Evu Þóreyjar í bráð.
Vestmannaeyjaferð

Fórum til Vestmannaeyja um síðustu helgi í skírn hjá litlu hans Ómars og Jessýjar. Litla skvísan fékk nafnið Magnea Evey, fallegt nafn. Gaman að koma til Vestmannaeyja en ekki eins gaman að ferðast þangað, alla vega ekki með Herjólfi. En það var ýmislegt brallað í Vestmannaeyjum, hittum ömmu Erlu, skoðuðum eyjuna aðeins og fórum út að borða.

Eva Þórey og Magnea Evey
Pabbi á afmæli í dag, pabbi á afmæli í dag

Elsku pabbi til hamingju með afmælið í dag.
Þínar stelpur
Tannmissir og íþróttaskóli

Sætar frænkur á Ljósanótt
Um síðustu helgi skunduðum við á ljósanótt í Keflavík. Dagurinn alveg flaug frá okkur en við náðum þó að kíkja aðeins á lífið. Hjörleifur bróðir var að spila og syngja í einni sjoppunni og hlustuðum við á nokkur lög áður en við fórum í skessuhellinn að skoða skessuna sem þar býr. Ásdísi fannst þetta mest spennandi en var samt ekki alveg viss hvort hún ætti að vera hrædd eða ekki. Í lok dags var okkur svo boðið í mat hjá pabba en hann töfraði fram kjúkling handa okkur og ekki sveik sú máltiíð okkur frekar en fyrri daginn.
Í dag byrjaði Ásdís í íþróttaskólanum. Við Eva þórey fórum með henni og Eva Þórey var dugleg að hjálpa systur sinni í gegnum æfingarnar. Ásdísi fannst mikið gaman og var eins og hún hefði verið í æfingabúðum þarna frá fæðingu. Enda er hún búin að bíða eftir að komast sjálf inn á völlinn eftir að hafa fylgst með stóru systur á æfingum síðustu vetur.
Eva Þórey missti tönn í nótt. Þegar hún vaknaði fann hún að tönnina vantaði svo upp hófst mikil leit að henni. Við litum undir koddann, undir sængina og allt í kring en ekki fannst tönnin. Það var ekki fyrr en Eva Þórey segir að það sé einhver tönn upp í henni sem hreyfist aðeins og er eins og hún sé á nýjum stað. Þá leit ég upp í hana og sá að tönnin sem hún hafði misst um nóttina hafði fest á milli tanna í efri góm og sat þar blýföst. Það þurfti átök til að ná henni út. Við vorum alla vega fegin að hún fór ekki ofan í maga
Eva Þórey var aðalega fegin því nú getur hún sett hana undir kodda í nótt og fengið heimsókn frá tannálfinum.
Nýjar myndir

Vorum að fá þessa stórglæsilegu mynd frá Erlu ljósmyndara sem sýnishorn.
Nú verður erfitt að bíða eftir restinni!
Settum inn nokkrar myndir úr athöfninni á Brúðkaupsdaginn og nokkrar sem Kalli tók þegar við vorum í myndatökunni.
Eigum svo eftir að setja inn myndir úr veislunni sjálfri. Það voru teknar yfir 700 myndir þannig að það er úr nógu að velja
.
Annars er nóg af veisluhöldum þessa dagana…Arnór Daði varð eins árs um síðustu helgi og fórum við auðvitað í veislu þangað.
Næst er það svo Eva Þórey en hún verður 7 ára á mánudaginn og ætlum við að halda upp á afmælið hennar á laugardaginn.



















Nýlegar athugasemdir