Vampire Weekend hafa tekið hug minn allan. Ég dýrka þessa hljómsveit.
Fyrsta lagið sem ég heyrði með þeim var Oxford Comma og var í kvikmyndinni I Love You Man. Nú keyri ég tvær plötur frá þessari æðislegu sveit í spilaranum; frumburðinn Vampire Weekend og þá nýjustu Contra.
Þessi lög eru öðrum betri í augnablikinu:
Rakst á nýtt stöff frá Julian Casablancas; forsprakka New York gæðasveitarinnar The Strokes. Lagið 11th Dimension er hreint sælgæti fyrir eyrun, tælandi seiður með sterkum eitís áhrifum.
Hlustið hér: Julian Casablancas – 11th Dimension
Næst á dagskrá er að vera sér úti um eintak af plötu Julians, Phrazes For The Young.
Aukaefni
Julian sprellaði með gosunum í SNL, úr varð tónlistamyndbandið Boombox:










Þetta Boombox myndband er legendary!
Þau eru nefnilega afskaplega mörg myndböndin sem koma frá SNL hópnum og ná legendary status.
Tvö þeirra sem ég mæli eindregið með eru “Dick in a box” og “Mother Lover” sem Justin Timberlake tók þátt í.