Hún á afmæli í dag

Helena á afmæli í dag og næstu 8 mánuði verðum við jafngömul, svo verð ég aftur ári eldri :)

Ég keypti afmælisgjöfina á fimmtudaginn í síðustu viku, massa flotta Didriksons úlpu, og gat ekki beðið til dagsins í dag með að afhenda hana; svona er bráðlætið!

Í gær vorum við með kruðerí með kaffinu og fengum góða gesti heim. Kvöldinu var svo eytt í kvikmyndagláp.

Við keyptum lambalæri með fínum afslætti í Bónus á laugardaginn sem verður eldað í tilefni dagsins – ég hlakka afskaplega mikið til kvöldsins ;)

Ein athugasemd við “Hún á afmæli í dag”

  1. [...] tilefni dagsins ætla ég að hætta í vinnunni örlítið fyrr í dag, vinn það upp í [...]

Bæta við athugasemd