Helena á afmæli í dag og næstu 8 mánuði verðum við jafngömul, svo verð ég aftur ári eldri ![]()
Ég keypti afmælisgjöfina á fimmtudaginn í síðustu viku, massa flotta Didriksons úlpu, og gat ekki beðið til dagsins í dag með að afhenda hana; svona er bráðlætið!
Í gær vorum við með kruðerí með kaffinu og fengum góða gesti heim. Kvöldinu var svo eytt í kvikmyndagláp.
Við keyptum lambalæri með fínum afslætti í Bónus á laugardaginn sem verður eldað í tilefni dagsins – ég hlakka afskaplega mikið til kvöldsins ![]()









[...] tilefni dagsins ætla ég að hætta í vinnunni örlítið fyrr í dag, vinn það upp í [...]