Færslur í February 2010

Og þá kom snjórinn

Ullabjakk.

Ég var með þá barnalegu óskhyggju að það kæmi ekki meiri snjór í vetur. Það gekk ekki eftir.

Færðin á milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur var svo sem ekkert til að kvarta yfir, hún var hins vegar verri inni í þorpinu. Nú þarf Helena að böðlast á Fabiunni með stelpurnar í leikskóla og skóla en sem betur fer er sá bíll nokkuð seigur.

Það verður víst skafrenningur og snjókoma í allan dag. Vona ég verði ekki veðurtepptur í borginni.

Lýðnetið

Hafir þú einhvern tímann leitt hugann að því hvernig lýðnetið (internetið) varð til ætti þetta myndband að varpa einhverju ljósi á það.

Myndbandið var að minnsta kosti ágætis upprifjun fyrir mig.

YouTube Preview Image

Viku síðar

Námskeiðið var fantagott. Platt er fínn kennari og fyrirtaks fyrirlesari. Fór í hádeginu síðastliðinn miðvikudag á fyrirlesturinn Why Software Sucks sem hann hélt á Grand Hótel – margt fróðlegt sem kom þar fram og oftar en einu sinni setti ég höku í bringu og viðurkenndi í hljóði augljós mistök.

Prism + WPF fara saman eins og camenbert og sulta; gin og tónik – ég fæ þó ekki að nota þetta í vinnunni alveg á næstunni, verð að láta mér nægja að fikta í þessu á kvöldin heima.

Held ég hafi staðið mig með ágætum á konudaginn. Konan og dæturnar fengu allar glaðning, ég  úrbeinaði lambahrygg og eldaði í hádeginu og bakaði súkkulaðiköku með kaffinu seinnipartinn (Betty Crocker að vísu en hey, telst samt!). Einu vonbrigðin þennan daginn var ekki hægt að rekja til mín ;o)

Endurmenntaður

Í dag og  næstu tvo daga verð ég á námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. David Platt, prófessor við Harvard háskóla, ætlar að kenna mér og einhverjum öðrum Programming Microsoft Prism, the Composite Application Library.

Prism er hlutasafn fyrir WPF (Windows Presentation Foundation) og Silverlight, fókusinn hjá mér verður á WPF-ið.

Hef áður fiktað við Prism og WPF en það fikt nær þó frekar grunnt – vonast til að vinna mér inn svartabeltið á námskeiðinu. Tæknilostinn er í það minnsta geypilegur.

Réttlæting

Þegar það er bolludagur, þá er fullkomlega eðlilegt að borða rjómabollur í kvöldmat.

Eða er það ekki?

Thank you

Massa, massa, massa gott lag hjá piltunum í Dikta:

YouTube Preview Image

(1080p option-ið er möst)

Stephen Colbert rappar

Alicia Keys tók lagið Empire State of Mind í þætti Stephen Colbert, The Colbert Report.

Hann rappaði:

http://www.colbertnation.com/the-colbert-report-videos/258570/december-15-2009/alicia-keys—empire-state-of-mind–part-ii–broken-down

Kóðarýni

Mér finnst þetta fyndið:

(via http://www.osnews.com/story/19266/WTFs_m)

Stelpurnar veikar

Eva Þórey var með magakveisu og Ásdís Karen fékk einhverja flensupest aðfararnótt þriðjudagsins. Eva Þórey var búin að ná sér strax í gær og fór á fimleikaæfingu seinnipartinn í gær, fer því í skólann í dag. Ásdís Karen var hress í gær og mældist ekki með hita í gærkveldi en það var vesen á henni í nótt og ég fann að hún var með hita.

Ég var heima með þeim í gær og sinnti vinnu á VPN-inu. Helena hjúkrar unganum í dag.

Fyrsta fimleikamótið

Eva Þórey keppti á sínu fyrsta fimleikamóti á sunnudaginn var. Mótið var haldið á Selfossi þar sem um það bil 160 keppendur frá 6 liðum öttu kappi. Hennar hópur stóð sig með prýði – hreppti ekki ein af þeim 5 verðlaunum sem í boði voru en eru reynslunni ríkari.

Ég var með myndavélina en sat of langt frá til að ná viðunandi myndum, er hundsvekktur útí sjálfan mig að hafa ekki reynt að ryðjast nær.