Breytingar á vef

Ég tók mig til í dag og skipti um hýsingaraðila og blogg kerfi. Sagði bless við BlogEngine.NET og hæ við WordPress því það er kerfið sem allir svölu krakkarnir nota :)

Keypti hýsingarþjónustu hjá 1984.is og verð að hæla þeim fyrir framúrskarandi þjónustu. Gekk frá pöntuninni í morgun og um sex leytið í dag var allt orðið klappað og klárt.

Færði póstinn í leiðinni í Google Apps þannig að núna kemur allur póstur í GMail-líku viðmóti (en Helena notar þó Mozilla Thunderbird). Ég er reyndar búinn að vera nota GMail í einhver ár, lét hann sækja póstinn af jonoskar.net léninu, en nú gerist þetta bara beint! Póstur sendur á jonoskar (hjá) jonoskar (punktur) net kemur beint í ofursvala, undurlétta, frábæra Google Apps án nokkurra klækja eða launráða.

Myndirnar fá nú ótakmarkað rými á Flickr-inu mínu auk þess sem ég get sett inn myndbönd líka. Nánari upplýsingar um myndirnar koma síðar.

Vefurinn er ekki tilbúinn, það vantar sennilega flestar eða allar  myndir við færslurnar, ég týndi einhverjum athugasemdum, permalink strúktúrinn ekki eins og ég vil hafa hann (inniheldur index.php)  og sitthvað fleira á örugglega eftir að koma í ljós.

Uppfært 20. janúar 10:48:
Eftir mikið gúggl fann ég út úr vandamálinu með permalink strúkturinn (fallegir linkar). Það þurfti að breyta vars.php skránni og force-a WordPress til að sjá að serverinn sem það keyrir á sé Apache. Ástæðan er að SERVER_SOFTWARE breytan er blokkuð. Jíha!

3 athugasemdir við “Breytingar á vef”

  1. - grettir says:

    Ofursvalt..

    Ég uppfæri RSS urlið..

  2. Jón Óskar says:

    Grettir, ég fann útúr þessu með permalink strúktúrinn þannig að RSS urlið hefur breyst núna.

    Þú mátt uppfæra urlið (aftur) í:
    http://jonoskar.net/feed/

  3. - grettir says:

    Þetta er urlið sem ég breytti í..
    Gamla var eitthvað feedburner dót :-)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE