Færslur í January 2010

Rainy Mood

http://www.rainymood.com/

Kósí stemmning í heddfónunum. Rainy Mood spilar rigningarhljóð með daufum þrumum í lykkju. Alveg agalega afslappandi.

Ég var kominn með svo agalegan hlandspreng eftir 2 mínútur að ég varð að slökkva :)

Haframjölið sprellar

The Oatmeal er dásamlegur vefur. Hárbeitt kómík í bland við nytsamlegar leiðbeiningar, eins og hvernig skal nota úrfellingarkommu og hvernig á að nota semíkommu.

The Oatmeal leggur sig fram við að upplýsa almúgann með myndaþáttum eins og: How to tell if your cat is plotting to kill you, Five reasons pigs are more awesome than you og 5 very good reasons to punch a Dolphin in the mouth.

Þá er vísað á vefi á borð við Things Bears Love og Marvelous Man Boobs.

Fyrirtaks grín á ferðinni.

Fáránleg frétt á mbl

Hvaða tilgangi þjónar þessi frétt (sjá skjáskot fyrir neðan)?

Hvar er bilun? Jú, einhversstaðar miðlægt! Ekki er bilun hjá mér. Ég get vel tuðað um þetta og bloggað eins og enginn sé morgundagurinn!

Pítsugerð stefnt í voða

Steinflísin sem ég keypti í nóvember gaf sig sl. föstudag.

Helena tók eftir sprungu í flísinni eftir baksturinn. Það varð vitaskuld úr að þegar ég skoðaði sprunguna brotnaði flísin í tvennt. Rafmagnspizzuofninn sem við eigum fyrir varð ónothæfur eftir við hófum að baka á flísinni – munurinn er slíkur að það jaðrar við glæp að baka pizzu í honum núna.

Það er víst hægt að baka pizzu á pottjárnspönnu í ofni með góðum árangri. Hef þó ekki prófað þessa aðferð þar sem ég á ekki pottjárnspönnu – langar þó til að eiga eina slíka.

Ætli ég verði ekki að renna við í flísabúð í vikunni.

Datt maturinn í gólfið?

Ég miða við 5 sekúndur; það er að segja ef ég næ matnum af gólfinu innan 5 sekúndna er fullkomlega öruggt og í góðu lagi að neyta hans.

5 sekúndna reglan er nokkuð þekkt, þó einhverjir vilja frekar miða við 30 sekúndur, þá ég held að 5 sekúndur séu nokkuð skynsamleg tímamörk.

Ef þú ert óviss um tímamörkin gæti þessi mynd verið hjálpleg:

Upprunaleg færsla: http://blogs.sfweekly.com/foodie/2010/01/you_dropped_food_on_the_floor.php

Heilsubrestur

Skelltum okkur á þorrablót á Eyrarbakka í gærkveldi. Tengdamóðir mín var í skemmtinefnd og því um skyldumætingu að ræða. Stelpunar fóru til afa og ömmu á Setberginu.

Blótið var frábært; hitti fullt af skemmtilegu fólki sem ég hef ekki hitt lengi og maturinn var …bara …þorramatur.

Heilsan er því ekki með besta móti í dag. Finnst eins og heilinn vilji út úr höfðinu. Ái.

Heppinn bóndi

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag beið mín nýbökuð súkkulaðikaka og þeyttur rjómi, dularfullur pakki og teikningar eftir stelpurnar.

Teikning Evu Þóreyjar var af mér með textanum “I love you Jón Óskar” :)

Mikið á ég góða konu og góðar dætur!

Hómópatar á bráðamóttökunni

YouTube Preview Image

Eldgos?

Eins og aðra morgna vaknaði ég við ljúfan hljóminn úr útvarpsvekjaranum. Í svefndrunganum teygði ég mig í OFF takkann en hætti snarlega við þegar eyrun vöknuðu.

Í útvarpinu var nefnilega verið að ræða við bónda á Skeiðum þar sem hann lýsti því hvernig glóandi hraunið rann úr fjallinu. Bein útsending? Ég glaðvaknaði og fór að bölva því að sennilega myndi ég ekki sjá í fjallið í þessu skyggni, rigning barði nefnilega á svefnherbergisrúðunni.

Allt var fyrir bý þegar karlmannsrödd tilkynnti að það væri ekkert eldgos í gangi, viðtalið var nefnilega tekið þegar Hekla gaus árið 1991.

Viðurkenni að ég var fyrir pínulitlum vonbrigðum.

Breytingar á vef

Ég tók mig til í dag og skipti um hýsingaraðila og blogg kerfi. Sagði bless við BlogEngine.NET og hæ við WordPress því það er kerfið sem allir svölu krakkarnir nota :)

Keypti hýsingarþjónustu hjá 1984.is og verð að hæla þeim fyrir framúrskarandi þjónustu. Gekk frá pöntuninni í morgun og um sex leytið í dag var allt orðið klappað og klárt.

Færði póstinn í leiðinni í Google Apps þannig að núna kemur allur póstur í GMail-líku viðmóti (en Helena notar þó Mozilla Thunderbird). Ég er reyndar búinn að vera nota GMail í einhver ár, lét hann sækja póstinn af jonoskar.net léninu, en nú gerist þetta bara beint! Póstur sendur á jonoskar (hjá) jonoskar (punktur) net kemur beint í ofursvala, undurlétta, frábæra Google Apps án nokkurra klækja eða launráða.

Myndirnar fá nú ótakmarkað rými á Flickr-inu mínu auk þess sem ég get sett inn myndbönd líka. Nánari upplýsingar um myndirnar koma síðar.

Vefurinn er ekki tilbúinn, það vantar sennilega flestar eða allar  myndir við færslurnar, ég týndi einhverjum athugasemdum, permalink strúktúrinn ekki eins og ég vil hafa hann (inniheldur index.php)  og sitthvað fleira á örugglega eftir að koma í ljós.

Uppfært 20. janúar 10:48:
Eftir mikið gúggl fann ég út úr vandamálinu með permalink strúkturinn (fallegir linkar). Það þurfti að breyta vars.php skránni og force-a WordPress til að sjá að serverinn sem það keyrir á sé Apache. Ástæðan er að SERVER_SOFTWARE breytan er blokkuð. Jíha!