Þessir hressu krakkar mótmæltu hressilega á Austurvelli með Bengal blysunum sínum.
Til allrar hamingju mundi ég eftir því að síminn minn er útbúinn myndavél.
Ég sem ætlaði að vera gríðarlega duglegur við að blogga um jólin, setja inn myndir og allt hvað eina.
Jæja, ég var þó duglegur að borða – eiginlega allt of duglegur.
rop.
afsakið.
Krakkarnir í Silversun Pickups eru hressir.
Lagið Substitution af “nýju” plötunni Swoon finnst mér afskaplega gott:
Mæli með því að horfa á myndbandið í háskerpu á YouTube:
http://www.youtube.com/watch?v=HcwX2TnsTPE&fmt=22
Tékkið líka á Well Thought Out Twinkles og Lazy Eye á þessu YouTube fyrirbæri í leiðinni, frábær lög.
Helena fékk jólagjöfina frá leikskólanum í gær. Í pakkanum var meðal annars bláberjakryddað lambalæri sem ákveðið var að elda enda voru góðar ástæður til þess: lærið átti að renna út 31. des, plássið í ísskápnum er af skornum skammti og síðast en ekki síst áttum við 13 ára trúlofunarafmæli. Eiginlega no-brainer.
Lærinu var því hent inn í 180°c heitan ofn með kjötmæli þangað til kjarnhiti var orðinn 80°c.
Sósan tókst afbragðsvel:
Nokkrir sveppir skornir og steiktir í íslensku smjöri, vatni og nauta- og kjúklingakrafti bætt útí auk bláberjakryddblöndu sem eftir varð í umbúðunum af lærinu. Þykkt með smjörbollu, nokkrum dropum af matarlit bætt við, nokkrir snúningar af svörtum pipar, sletta af rjóma og púnkturinn yfir i-ið: matskeið af rifsberjahlaupi.
Eins og lög gera ráð fyrir var lærið látið hvíla í sirka kortér eftir það kom úr ofninum og það reyndist afskaplega gott – jafnvel awesome.
Fór í bólusetningu vegna svínaflensunnar í gær. Var sagt að ég gæti orðið aumur í handleggnum á eftir. Þegar ég vaknaði í morgun var eins og ég hefði verið kýldur í öxlina, það rífur í að lyfta handleggnum. Helena fór fyrir um það bil mánuði síðan og stelpurnar í síðustu viku. Fjölskyldan er því orðin helbólusett gegn óværunni.
Ótrúlega töff myndir af snjókornum sem sýna ótrúleg smáatriði.
http://www.webdesignerdepot.com/2009/12/incredible-examples-of-snowflake-photography/
Fimleikahópurinn hennar Evu Þóreyjar tók þátt í fimleikasýningu laugardaginn 5. desember. Sýningin fjallaði um jólaævintýri Bangsímons og hópurinn hennar Evu Þóreyjar voru í gervi Tuma Tígurs.
Myndin er tekin á laugardagskvöldinu, þegar andlitsmálningin var farin að dreifa sér.
Ásdís Karen þungt hugsi við tölvuna. Sjálfsagt að íhuga hvaða kjól hún skuli velja á dúkkulísuna í leiknum…
Nýlegar athugasemdir