Sumt fólk elskar háu ljósin á bílnum sínum. Þetta pakk virðist vera haldið svo sjúklegri myrkfælni að það skeytir engu um aðra í umferðinni – sama hvort það ekur á eftir bíl eða mætir einum.
Undanfarnar vikur hef ég kynnst þónokkrum úr þessum hópi og í hvert sinn sýður á mér. Þessi skítbuxar gera mér, og öðrum væntanlega, lífið leitt með því að:
- Lækka ljósin tímanlega áður við mætumst en augnabliki áður en við erum samsíða setja háu ljósin á og brenna úr mér augun.
- Nálgast að aftan, með háu ljósin, og lækka þau ekki fyrr en ég hef blikkað þokuljósinu að aftan eða setja hazard ljósin á – hef þurft að beita báðum úrræðum. Tvisvar hafa beiðnir mínar um lækkun á ljósum verið virtar að vettugi; þá hef ég tekið á það ráð að draga úr hraðanum, fara útí kant og hleypa fávitanum fram úr mér og setja svo háu ljósin á helvítið. Auga fyrir auga, moðerfokker.
Oftast duga blikkin til að viðkomandi lækki ljósin en mér er það gersamlega óskiljanlegt hvernig fólk getur verið laust við alla skynsemi og tillitsemi við samferðamenn í umferðinni ( mamma, krakkarnir eru vondir við mig ;o) ).
Skítbuxar, drullusokkar, fávitar.
Nýlegar athugasemdir