Eva Þórey vakti okkur með látum í nótt með æluna í hálsinum. Ég rétt náði að henda henni útúr rúminu áður en fyrsta gusan kom. Gusa númer tvö fór sem betur fer í baðkarið.
Hún gubbaði tvisvar sinnum eftir þetta og er gubbupestin því sannreynd, ég var að vona að fyrsta tilfellið hefði bara verið það eina en því var ekki að fagna. Ekkert okkar var tilbúið að vakna þegar klukkan hringdi í morgun.
Það er svolítið fyndið að þegar Ásdís Karen vaknar svona upp á næturnar fær hún alveg makalausa munnræpu – þarf að ræða allt milli himins og jarðar
)
En varið ykkur, þetta ógeð er víst eitthvað að ganga.









Nýlegar athugasemdir