Færslur í November 2009

Google Wave Invites

Mér var að hlotnast 8 16 24 stk invite á google wave.

Ef þú hefur áhuga, settu þá nafn og gmail netfang í athugasemd, og ég skal alvarlega íhuga að senda þér invite.

Ekki setja att merkið, @, ef þú vilt komast hjá ruslpósti. Settu “nafn hjá gmail punktur com”.

21 eftir

Klaufabárðar

Við hituðum grænmetisbuff og kjúklinganagga í kveldmatinn í gærkveldi. Stelpurnar heimtuðu að fá sér sjálfar á diskinn úr eldfasta mótinu en það fór ekki betur en svo að þær brenndu sig á funheitu forminu. Báðar.

Ásdís Karen brenndi sig handleggnum þegar hún stakk gafflinum í buff. Eva Þórey, þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir, þurfti að pota puttanum í formið og finna hvort það væri heitt. Hún komst að því með nístandi sársauka að svo var.

Mamma átti enn Burn-Free krem frá Mánadögunum, töfrakrem sem kælir og deyfir brunasár. Ég fékk því skammt til að bera á klaufabárðana.

Þær sofnuðu báðar með kælingu á sárunum.

Rafsuðublinda, eða svona hér um bil

Þegar skipt er um peru í halógenljósi þarf ég að:

  • slökkva bévítans ljósið og hafa þá vasaljós til að sjá hvað ég er að gera
  • setja á mig góð sólgleraugu

Skipti nefnilega um peru í ljósi inn á baði um helgina og var allt að því löglega blindur í nokkrar mínútur á eftir…

Ölsmökkun

Mikið afskaplega finnst mér Víking jólabjórinn góður.

Helena er á jólaglöggi með leikskólanum og stelpurnar sofnaðar. Þetta var spurning um norska spennumynd á RÚV eða tölvuna og fágaða ölsmökkun.

Feginn að ég valdi rétt :o )

Föstudagspítsan

Pítsan í kvöld sló met. Án efa sú besta síðan ég hóf tilraunastarfsemi í eldhúsinu.

Tveir veigamiklir hlutir breyttust í ferlinu:

  1. ég bjó til deigið í gærkveldi, notaði ískalt vatn í það, skipti í kúlur og lét það bíða – hefast á löngum tíma – inn í ísskáp þangað til klukkan fjögur í dag (bakaði um sex leytið)
  2. bakaði inni í ofninum á funheitum stein (ofn stilltur á 250°c). Stein sem ég keypti í Flísabúðinni í dag fyrir heilar fimmtánhundruð krónur. Það er á mörkunum að kalla þetta “stein”, þetta er víst bara óglerjuð flís – einhver náttúrusteinn.

Ég var búinn að vera lengi á leiðinni að kaupa pítsustein en rakst á það á google um daginn að óglerjuð flís gæti gegnt þessu hlutverki með prýði. Kemur sér geypilega vel þar sem verðkannanir sýndu að eiginlegur pítsusteinn er að kosta á bilinu sex til átta þúsund krónur.

Mæli eindregið með þessari eldunaraðferð.

Píta – fyrir lengra komna

Þetta er ekki hefðbundin píta þar sem brauðinu er skellt í brauðristina og gúmmelaðinu skellt í vasann. Þetta er píta fyrir lengra komna.

Taktu pítubrauðin tímanlega úr frystinum (séu þau þar yfir höfuð) settu í poka og leyfðu þeim að þiðna í rólegheitum. Stilltu ofninn á 180°c. Sippaðu hakki eða kjúkling á pönnu og steiktu þar til tilbúið. Ég nota yfirleitt hakk, krydda með Season-All og þegar hakkið er næstum steikt strái ég pizzakryddi yfir, puðra pizzasósu yfir og blanda saman. Á meðan hakkið/kjúllinn er að eldast á snarkheitri pönnunni er gráupplagt að láta eftir sér að smjörsteikja nokkra sveppi – niðursneidda. Alger killer.

Þegar kjetið er klárt eru pítubrauðin skorin nánast í tvennt, þversum nóta bene, og lögð á álpappírsklædda ofnplötu. Kjetinu skellt á annan helminginn, rifnum osti á hinn og smjörsteiktu sveppunum ofan á hakkið. Á þessu stigi mega ævintýragjarnir bæta meira ofan á; feta osti, ferskum mozzarella eða hverju því sem hugurinn (eða maginn) girnist. Hugrakkir fullkomna verkið með jalapeno sneiðum.

Nú er ofnplatan sett í heitan ofninn og látin dúsa þar í um það bil tíu mínútur, eða þar til osturinn er hæfilega bráðinn. Á meðan dútlaru við að skera niður uppáhalds grænmetið þitt.

Út kemur ofnplatan, pítur færðar á matardisk og grænmetinu dreift yfir af lyst. Púnkturinn yfir i-ið er svo slumma af pítusósu eftir smekk. Helmingnum sem er ekki með hakkinu skellt á og þrýst blítt en ákveðið ofan á. Borðist með hnífapörum, mæli með grillhníf þar sem brauðin verða stökk í ofninum.

Gjörsvovel.

Eva Þórey veik

Eva Þórey vakti okkur með látum í nótt með æluna í hálsinum. Ég rétt náði að henda henni útúr rúminu áður en fyrsta gusan kom. Gusa númer tvö fór sem betur fer í baðkarið.

Hún gubbaði tvisvar sinnum eftir þetta og er gubbupestin því sannreynd, ég var að vona að fyrsta tilfellið hefði bara verið það eina en því var ekki að fagna. Ekkert okkar var tilbúið að vakna þegar klukkan hringdi í morgun.

Það er svolítið fyndið að þegar Ásdís Karen vaknar svona upp á næturnar fær hún alveg makalausa munnræpu – þarf að ræða allt milli himins og jarðar :o )

En varið ykkur, þetta ógeð er víst eitthvað að ganga.

Dýfingar 101

Hér er kennt hvernig best er að bera sig að í dýfum á knattspyrnuvellinum, með vísan í atvinnumenn í “dýfingum”.

YouTube Preview Image

Heitasti sörfstaðurinn

Kastljós fjallaði um brimbrettaiðkun síðastliðinn miðvikudag. Sýnt var myndskeið frá “leyndum” stað þar sem hugrakkir surfarar sýndu hæfileika sína í ólgandi brimsköflum.

Heimakunnugir, eins og ég, sjá að þessi “leyndi” staður er enginn annar en brimbrettaparadísin Þorlákshöfn – nánar tiltekið grjótfjaran fyrir neðan útsýnispallinn; þar sem vikurvinnslan er.

Umfjöllun Kastljóss má skoða hér: Brimbretti í íslenskum sjó.

Rapparar hafa líka tilfinningar

Nýtt efni frá snillingunum í Flight of the Conchords, I’ve got hurt feelings:

YouTube Preview Image

Til upprifjunar þá gerðu þeir garðinn frægan með laginu Business Time:

YouTube Preview Image

Miklir meistarar.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE