Vinnufélagi minn benti mér á bloggfærslu á mánudaginn var þar sem höfundur bauð upp á boð (e. invite) í nýjasta nýtt frá Google: Google Wave. Google Wave er samvinnutól (e. collaboration tool) sem virkar eins og tölvupóstur, skjöl og spjall – allt í einum pakka. Samskipti eiga sér stað á rauntíma sem gerir þau fyrir vikið mun hraðvirkari en hefðbundinn tölvupóstur.
Ég setti inn athugasemd hjá höfðingjanum sem skrifaði færsluna og bað um invite. Í morgun beið mín póstur í gmail þar sem invite-ið hafði loksins skilað sér.
Hugmyndin á bak við Wave er afar snjöll en vitanlega er Wave-ið gagnslaust ef ég á enga tengiliði. Úr því bætist þegar vinnufélagarnir poppa inn og ég vonast til að fá einhverjum invite-um úthlutað svo ég geti boðið þeim sem ég þekki. Ef heppnin verður með mér og mér hlotnast invite til að dreifa mun ég setja það inn hér.
Þangað til verð ég einn á Google Wave
)










Nýlegar athugasemdir