Færslur í August 2009

Liverpool leikir 2009-2010 í dagatalið

Liverpool bloggið býður nú upp á niðurhal af leikjum Liverpool þetta tímabilið.

Ég niðraði skránni, bjó til nýtt dagatal í Google dagatalinu (það er hægt að hafa mörg undir einum hatti) og flutti skránni inn í það (import), easy peasy. Nú er engin hætta á að ég missi af leik! Ekki eins og það hafi verið vandamál til þessa ;o)

Frábær fítus í Google dagatalinu er að ég stillti það til að senda mér póst á hverjum morgni um viðburði dagsins. Í dagatalinu eru helstu afmælisdagar og nú, leikir Liverpool.

Færsluna með niðurhalinu á dagatalinu má finna hérna.

Eva Þórey átta ára

Það er gömul tugga að tíminn líður hratt en engu að síður er það þekkt staðreynd. Um leið og ég sakna Evu Þóreyjar sem litlu skotti fagna ég hverju árinu sem líður og hún stækkar og þroskast.

Og nú langar hana í síma!

Frá því hún var vart talandi hefur hún haft brennandi ástríðu fyrir tónlist. Hún vildi oft frekar horfa á tónlistarmyndbönd á PoppTV heldur en teiknimyndir – dillaði sér og hummaði með lögunum.

Við gáfum henni því mp3 spilara í afmælisgjöf þó hún hafi sérstaklega óskað eftir farsíma. Okkur finnst einfaldlega ekki kominn tími á að hún hafi síma til eigin afnota.

Ragna Kristín á einmitt líka afmæli í dag. Til hamingju Ragna mín, veit að þú lest þetta því þú ert um það bil sú eina sem kommentar á þetta blessaða tuð mitt á þessum vef.

Litlu hlutirnir skipta máli

Í gær fékk Ásdís Karen boðskort í afmælisveislu inn um bréfalúguna. Þegar mamma hennar las boðið fyrir hana ljómaði hún eins og sól í heiði. Fyrsta alvöru afmælisboðið orðið staðreynd.

Hún minnti okkur reglulega á þetta í gærkveldi, alveg þangað til hún sofnaði. Við morgunverðarborðið tók hún sér pásu frá kornfleksinu þegar hún mundi eftir gærdeginum, brosti útað eyrum og sagði: “Ég er að fara í afmæli til Gígju!”.

Afmælisboðskort til lítilla hnáta er nefnilega svipað og við fullorðnu fengjum boð í partý þar sem vel væri veitt af fríum veigum og Weezer spilaði fyrir dansi.

Eða svo ímynda ég mér alltént.

8 ára afmælisveisla

Héldum upp á 8 ára afmæli Evu Þóreyjar í dag þar sem Helena fer norður vegna skólans í fyrramálið.

Eiginlegt afmæli er í raun ekki fyrr en á þriðjudag, 25. ágúst.
Þá verður hún orðin átta ára.
Stóra stelpan.

Það er að koooomaaaa!

Brrrr….

Rokið hristi Fabíuna hressilega. Ímyndið ykkur atriðið í Ace Ventura: When Nature Calls þegar hann keyrir Land Rover jeppann og hendist til og frá. Á malbiki :o )

Nú eða sjáið sjálf:

http://www.youtube.com/watch?v=suH8Wx1_9I0

LIKE A GLOVE!

Eftirherma í Litlu Hafmeyjunni

Freyr Eyjólfsson, sá ágæti útvarpsmaður, tekur eftirhermur í þættinum Litla Hafmeyjan sem er á dagskrá Rásar 2 á föstudagskvöldum.

Piltarnir hringdu í Frey og tók hann legendary eftirhermur á borð við Hallbjörn Hjartarson, Jakob Frímann og Björn Jörund.

Uppákomuna er hægt að hlusta á hér: http://doddilitli.blog.is/blog/doddilitli/. Á vinstri spássíu síðunnar er svartlitaður tónlistarspilari, smellið á línuna sem inniheldur textann “2 Litla Hafmeyjan – - Jakob Frímann…” til að hlusta á dýrðina.

Þetta er óborganlegt.

Strandferð

Fórum í strandferð (fjöruferð) í blíðunni á mánudaginn þar sem þessar myndir voru teknar. Stelpunum fannst þetta afskaplega skemmtilegur gjörningur, ekki síður en okkur. Ég gekk í barndóm og upplifði gamla daga; prílaði upp á melgresis þakta sandhólana og hoppaði niður í mjúkan sandinn. Var sveittur og andstuttur eftir á – hvernig væri nú að reyna koma sér í annað form en kringlótt?

Pappírsbrúðkaup

Í dag er komið eitt ár síðan séra Baldur pússaði okkur saman í Þorlákskirkjunni í viðurvist fjölskyldu og vina.

Legendary dagur.

Boðflenna á þakinu

Þessi gerði sig heimakomna á þakinu okkar um daginn.

Svalt vídjó

Listakonan sem kallar sig Santigold samdi lagið L.E.S. Artistes. Lagið finnst mér afskaplega gott, ekki skemmir fyrir hvað vídjóið er svalt.

YouTube Preview Image