Útilega 2009 – 3: Ættarmót á Reykjanesi

Lögðum af stað í samfloti við mömmu og pabba + Gest og Dai um ellefuleytið á fimmtudagsmorgni. Stoppuðum þrisvar á leiðinni; Bónus í Borgarnesi, pissustopp í Búðardal og fyrir neðan Þorskafjarðarheiði. Vorum komin á tjaldsvæðið um fimmleytið.

Sundlaugin á svæðinu gekk í gegnum lagfæringar í vor/sumar og opnaði aftur fyrir um mánuði síðan. Laugin er hituð með heitu uppsprettuvatni og náttúruleg, skilst það sé engum klór bætt við vatnið enda þrífst í henni grænn og háll/sleipur gróður. Afskaplega notaleg og góð sundlaug.

Eiginlegt ættarmótið var sett á laugardeginum með skrúðgöngu í kringum tjaldsvæðið. Krakkarnir fengu sápukúlur og sælgæti auk þess að vera boðið upp á andlitsmálningu. Sameiginlegur kvöldmatur og skemmtiatriði á eftir var hýst í sal þar sem hitinn var nánast óbærilegur – bæði skein sólin beint inn um gluggana og salurinn fullur af fólki. Þó aðalfjörið væri á laugardagskveldinu drakk ég bjórinn hóflega, ég nennti ekki að keyra heim á sunnudegi í þynnku sem er gjörn á að koma daginn eftir.

Skyldustopp á Hótel Bjarkalundi var tekið á heimleið auk þess sem við stoppuðum að að borða í Búðardal. Samkaups-sjoppan var troðin út að dyrum svo við ákváðum að leita annað; fundum Villa Pizza steinsnar frá. Þaðan fórum við svöng út eftir við höfðum setið í um það bil tíu mínútur – kortér án þess svo mikið sem að vera boðið upp á matseðil. Svona skítastaðir geta átt sig og fá ekki krónu úr mínum vasa.

Eftir helgina stendur fínt ættarmót, veðrið var svo sem með ágætum nema það blés kannski heldur meira en góðu hófi gegnir. Næst á dagskrá er ættarmót Helenu megin, í Árnesi.

Frændsystkin eftir andlitsmálningu

Tvær nætur við Úlfljótsvatn, fjórar nætur í Hrífunesi og við Hellishóla, þrjár nætur á Reykjanesi. Þrjár útilegur, níu nætur komnar þetta sumarið.

Tvær nætur bætast við næstu helgi og svo er verslunarmannahelgin eftir – þetta sumar slær met.

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE