Færslur í July 2009

of næmur

Ég er með alveg glás af næmi fyrir frjókornum núna. Klæjar í augun og þau orðin rauð eins og epli og ég hnerra í akkorði – vaknaði meira að segja í nótt hnerrandi. Ofan á þetta snýti ég fleiri lítrum af vessum yfir daginn svo risavaxið nefið er orðið þurrt og aumt.

Held að Lóritínið sé hætt að virka eins og það gerði fyrr í sumar. Fór því í apótekið áðan og keypti önnur lyf fyrir þúsundir króna til að prófa; Kestine töflur og Livostin augndropar.

Komið rúmt kortér síðan ég dreypti í augun á mér og svei mér þá, held ég sé allur að koma til. Vona það alltént.

Uppfært 23:45:

Jú, ég er bara orðinn helvíti góður – þökk sé lyfjavísindum. Það hefur dregið umtalsvert úr snýtingum og hnerrum, augun meira að segja búin að vera til friðs.

Útilega 2009 – 3: Ættarmót á Reykjanesi

Lögðum af stað í samfloti við mömmu og pabba + Gest og Dai um ellefuleytið á fimmtudagsmorgni. Stoppuðum þrisvar á leiðinni; Bónus í Borgarnesi, pissustopp í Búðardal og fyrir neðan Þorskafjarðarheiði. Vorum komin á tjaldsvæðið um fimmleytið.

Sundlaugin á svæðinu gekk í gegnum lagfæringar í vor/sumar og opnaði aftur fyrir um mánuði síðan. Laugin er hituð með heitu uppsprettuvatni og náttúruleg, skilst það sé engum klór bætt við vatnið enda þrífst í henni grænn og háll/sleipur gróður. Afskaplega notaleg og góð sundlaug.

Eiginlegt ættarmótið var sett á laugardeginum með skrúðgöngu í kringum tjaldsvæðið. Krakkarnir fengu sápukúlur og sælgæti auk þess að vera boðið upp á andlitsmálningu. Sameiginlegur kvöldmatur og skemmtiatriði á eftir var hýst í sal þar sem hitinn var nánast óbærilegur – bæði skein sólin beint inn um gluggana og salurinn fullur af fólki. Þó aðalfjörið væri á laugardagskveldinu drakk ég bjórinn hóflega, ég nennti ekki að keyra heim á sunnudegi í þynnku sem er gjörn á að koma daginn eftir.

Skyldustopp á Hótel Bjarkalundi var tekið á heimleið auk þess sem við stoppuðum að að borða í Búðardal. Samkaups-sjoppan var troðin út að dyrum svo við ákváðum að leita annað; fundum Villa Pizza steinsnar frá. Þaðan fórum við svöng út eftir við höfðum setið í um það bil tíu mínútur – kortér án þess svo mikið sem að vera boðið upp á matseðil. Svona skítastaðir geta átt sig og fá ekki krónu úr mínum vasa.

Eftir helgina stendur fínt ættarmót, veðrið var svo sem með ágætum nema það blés kannski heldur meira en góðu hófi gegnir. Næst á dagskrá er ættarmót Helenu megin, í Árnesi.

Frændsystkin eftir andlitsmálningu

Tvær nætur við Úlfljótsvatn, fjórar nætur í Hrífunesi og við Hellishóla, þrjár nætur á Reykjanesi. Þrjár útilegur, níu nætur komnar þetta sumarið.

Tvær nætur bætast við næstu helgi og svo er verslunarmannahelgin eftir – þetta sumar slær met.

Berjatínsla á Reykjanesi

Eva Þórey tínir óþroskuð krækiber á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi.

Erum sumsé komin heim af ættarmótinu. Meira um ferðalagið síðar.

Gert og græjað

Fórum í kaupstað í dag að útrétta fyrir ættarmótið um helgina. Sótti myndavélina úr viðgerð í Fótóval tvisvar. Í fyrra skiptið kom í ljós að vélin var eins og fyrir viðgerð, spegillinn festist uppi. Fór aftur seinnipartinn og þá var sú litla í rífandi stuði.

Vorum að vesenast í Kópavoginum og komum við í Muffin Bakery í Hamraborginni. Staður sem ég mæli hiklaust með; hands-down bestu möffins sem ég hef nokkurn tímann smakkað. Dílissjös.

Er búinn að vera græja fellihýsið líka. Sótti fótinn undan því úr viðgerð í gær en sökum leti fór hann ekki undir fyrr en í kvöld. Þurfti aðeins að hafa fyrir því en með dyggri aðstoð góðra manna tókst aðgerðin með ágætum.

Stefnum á að leggja af stað um tíu leytið í fyrramálið á vestfirðina. Með stoppi í Bónus í Borgarnesi og ef til vill einu í viðbót ættu þetta að vera á milli fjórir og fimm tímar. Tökum með einhverjar myndir, leiki og músík fyrir stelpurnar að gleyma sér yfir á leiðinni. Þá ætti þetta að vera nokkuð ljúft.

Frá Hrífunesi

Útilega 2009 – 2: Hrífunes og Hellishólar

Sumarfríið var rétt skollið á þegar búið var að krækja fellihýsinu aftan í jálkinn og haldið út úr bænum. Fórum sumsé strax á miðvikudagsmorgun í austurátt og áðum við Hrífunes sem er um það bil 15 kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. Ragna og Beggi voru þar í bústað og við fengum að parkera fellihýsinu hjá þeim. Umhverfið er meiriháttar þarna; lækur sem rennur rétt hjá bústaðnum þar sem krakkarnir dunduðu sér daglangt við að reyna veiða síli. Við Beggi príluðum upp gilið þaðan sem lækurinn rennur úr – svöluðum þorsta og kældum okkur í svölum læknum. Geggjað.

Myndavélin fór í kleinu og hætti að virka strax á fyrsta degi. Bilun. Skjárinn sagði “Error: Press shutter release button again”. Ég tók linsuna af og sá að spegillinn sat fastur uppi, var ekki skemmt. Vorum búin að taka 144 myndir (einhverjar hreyfðar þó og þeim verður hent), get aðeins ímyndað mér hversu margar þær hefðu orðið ef vélin hefði ekki bilað. Ég er búinn að vera ótrúlega sár og svekktur út af þessu. Sem betur fer fengum við litla Canon Ixus 50 vél lánaða hjá tengdó svo við tókum einhverjar myndir til viðbótar en þær voru ekki margar. Það er gríðarlegur gæðamunur á myndum sem koma úr þessum tveimur vélum.

Tókum upp og rúntuðum á Hellishóla á föstudag. Snjólaug og Kalli sem höfðu líka verið í bústaðnum fyrir austan með okkur sóttu fellihýsið sitt á Bakkann og tjölduðu líka. Þegar ég var að tjalda fellihýsinu sá ég að einn af stoðfótunum fjórum vantaði. Fátans fóturinn hafði farið undan einhversstaðar á leiðinni frá Hrífunesi og að Hellishólum. Til allrar hamingju fann Helena fótinn á sunnudagsmorgun. Hann hafði dottið af á tjaldsvæðinu, einhver fundið hann og stillt upp við salernisaðstöðuna.

Dagurinn í gær var því nýttur í að koma tjónuðum hlutum í viðgerð; myndavélin fór í bæinn (fáum hana vonandi á morgun, miðvikudag) en fóturinn undan fellihýsinu fór á verkstæði hér í bæ (fór áðan og hann var tilbúinn).

Næst á dagskrá er ættarmót á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Er að vona að myndavélin verði tilbúin áður en við förum á fimmtudag.

Sumarfrí

Eftir daginn í dag erum við öll komin í sumarfrí. Næs.

Ætlum í útilegu í fyrramálið, ekki ákveðið hvert en það verður að öllum líkindum á suðurlandinu – ef til vill austar. Mig langar svolítið að prófa Kleifarmörk við Kirkjubæjarklaustur, jafnvel Skaftafell.

Mikið afskaplega verður gott að komast í frí. Jafnvel næs.

Ísöld 3

Gerðum okkur glaðan dag í dumbungnum og fórum að sjá Ísöld 3 í Sambíóum Álfabakka ásamt Gesti, Dai, Gillí og Bergi Ómari. Ég var einstaklega hygginn í þetta skiptið og keypti miða fyrir hersinguna á midi.is áður en við lögðum í’ann. Það átti eftir að koma sér vel því lengdin á röðinni í miðasöluna var slík að við hefðum ekki komist að í tæka tíð.

Völdum 3D sýninguna en ég varð fyrir vonbrigðum; það var einungis eitt atriði sem mér fannst njóta sín til fulls í þrívíddinni sem mér þykir afar slappt.

Hléið var heldur langt og Ásdís Karen og Bergur Ómar voru farin að ókyrrast síðasta kortérið en myndin sem slík var ágætis skemmtun. Niðurstaðan er sú að upplifunin var ekkert til að hrópa húrra yfir – myndin hefði sennilega skilað nákvæmlega því sama hefðum við horft á hana á DVD.

Við gerðum óformlega könnun á ferðavögnum á leiðinni heim: töldum 28 fellihýsi, 18 tjaldvagna og 9 hjólhýsi frá Álfabakkanum. Vinsælustu vagnarnir hljóta því að vera fellihýsin.

Sérviska

Það er alveg merkilegt hvað maður getur þróað með sér undarlega kæki og sérvitra siði.

  • Ef hægri hendin blotnar, verð ég að bleyta þá vinstri líka (og vitanlega öfugt).
  • Ég byrja alltaf á að borða brauð á þeim enda sem snýr upp í forminu sem það er bakað í.
  • Ég forðast það í lengstu lög að hafa hljóðstyrk í bílútvarpinu á 13. Lendi ég óvart á 13 tjúna ég á 12 eða 14. (Ómar Páll bróðir tekur þetta skrefinu lengra og hefur hljóðstyrkinn alltaf á sléttri tölu – ALDREI oddatölu).

Japanir eru snillingar

Ég hef minnst á japanska leikjaþætti áður. Það verður ekki af þeim tekið; japanir eru snillingar þegar kemur að leikjaþáttagerð.

Hér eru tvö vídjó sem vert er að skoða:

How to get up, eat breakfast and get ready for work in five minutes:

YouTube Preview Image

Japanese game show:

YouTube Preview Image