Eftir samfellda áskrift í áraraðir að stöð 2 tókum við stökkið; klipptum á naflastrenginn og hættum með áskriftina (amk í sumar). Um leið hættum við með stöð 2 sport 2 (enska boltann) enda ekkert varið í efnið sem sýnt er þar á sumrin. Þess fyrir utan er áskriftargjaldið svívirðilegt okur og þetta er óþarfa lúxus á tímum sem þessum.
Við horfum afskaplega lítið á sjónvarp á sumrin, nema þá kannski um helgar. Það er því ansi blóðugt að borga þúsundir króna í áskrift að sjónvarpsefni sem við horfum aldrei á.
Ég er að vona að við finnum ekki löngun til að taka áskrift aftur í haust – þó það sé sérstaklega freistandi vegna enska boltans. Vona að gamla góða RÚV eða Skjárinn verði með eitthvað djúsí efni – nú já eða Lýðnetið.
Nýlegar athugasemdir