Vorum mætt rétt fyrir fimm á tjaldsvæði Skáta við Úlfljótsvatn, skoðuðum svæðið og ráðfærðum okkur við tjaldvörðinn áður en tjaldbúðir voru reistar. Vildum forðast mýið í lengstu lög svo við völdum tjaldstæði fjærst vatninu, steinsnar frá veginum. Nýja grillið stóðst væntingar og skilaði börgerum og pylsum af sér með stakri prýði.
Renndum fyrir fisk í blíðunni á laugardaginn en varð ekki kápan úr klæðinu – þrátt fyrir að nánast geta teygt okkur í bleikjuna sem svamlaði glottandi fyrir framan nefið á okkur. Varð fyrir því óláni að brjóta flugustöngina þegar ég skipti um flugu sem var slæmt því við hliðina á okkur voru tveir veiðimenn sem mokuðu upp bleikjunni á flugu með tökuvara. Þarf að leggjast í rannsóknarvinnu á nýrri flugustöng; trausta en ódýra.
Ásdís Karen vaknaði á aðfaranótt sunnudags með bullandi hita og var ákveðið að taka saman eftir morgunmatinn og fara heim. Kom sér vel að fara snemma og losna við traffíkina sem myndaðist síðar um daginn. Verra er að þegar við vorum búin að pakka fellihýsinu saman og ætluðum að snúa því brotnaði nefhjólið af beislinu. Við Gestur gátum ekki lyft beislinu tveir en til allrar hamingju fengum við hjálp frá tjaldnágrönnum við að rúnta hýsinu á krókinn. Annað tjónið í ferðinni en ég ætti að geta rúntað með vagninn á verkstæði í Þorlákshöfn og fengið nefhjólið soðið á beislið aftur – þar sem það á að vera.
Stefnum á útilegu aftur næstu helgi ef Ásdís Karen verður búin að ná sér að fullu.
Breytt 17:51:
Fór á verkstæðið og nefhjólið var rafsoðið á beislið. Beið á meðan enda var náunginn snöggur að þessu. Þurfti engu síður að borga fimm þúsund krónur fyrir viðvikið – ansi gott tímakaup á þeim bænum.









Nýlegar athugasemdir