Fellihýsið og jálkurinn, Sandártunga Þjórsárdal, júní 2008
Erum að græja okkur í fyrstu útilegu sumarsins, þrettán dögum seinna en í fyrra. Stefnan tekin á Úlfljótsvatn, höfum aldrei dvalið þar áður – nema Helena skáti
)
Búið er að fara vel og vendilega yfir fellihýsið, sótthreinsa vatnstankinn og annað nauðsynlegt viðhald.
Keyptum okkur nýtt ferðagasgrill um daginn sem verður vígt um helgina. Gamla grillið er nefnilega þannig að það er nánast í jörðinni, það verður munur að geta staðið við grillið með grilltöngina í annari og kaldann í hinni. Veit það er svolítið 2007 að spreða í nýtt grill en það er margt annað sem við leyfum okkur ekki – svo hví ekki?
Úlfljótsvatnið er reyndar rómað fyrir flugnamergð, erum að vona að kvikindin verði ekki til vandræða þessa helgina. Ég veit fyrir víst að það færi óendanlega í taugarnar á Ásdísi Karen ef mikið er af mýi.
Ætla taka veiðigræjurnar með og bleyta í. Hef engan veginn staðið veiðipliktina, fór held ég bara einu sinni í fyrra sem verður að teljast afskaplega léleg frammistaða.










Góða skemmtun í fyrstu útilegunni elsku fjölskylda.
Erum farin að sakna ykkar allra frekar MIKIÐ!
Vonandi hittumst við nú von bráðar.
Kveðja úr Eyjunum.
Magnea Evey sendir knús á kossa á ykkur
Góða skemmtun þið
Ykkar verður sárt saknað um helgina…