Færslur í April 2009

Helena fer út

Helena er að fara út til Englands í náms- og kynningarferð með leikskólanum. Þær eiga flug til London í dag klukkan fjögur og koma heim á sunnudag.

Ég verð því grasekkill í um það bil fjóra daga. Ætla að gera eitthvað skemmtilegt með stelpunum mínum, sérstaklega þar sem Eva Þórey er búin að vera með hnút í maganum fyrir fjarveru mömmu sinnar.

Alþingiskosningar á laugardag og ég er ekki enn búinn að ákveða hvert atkvæði mitt fer. Kannski ég bjóði það hér með til sölu? Prísinn er þrjú kíló af vestfirskum harðfiski, átján sviðakjammar, þæfð ull af tylft fjár og 2 flöskur af íslensku brennivíni.

Háspenna lífshætta

Leikurinn í gærkveldi var jafnmikil rússíbanareið og leikurinn við Chelsea fyrir viku síðan. Annað 4-4 jafntefli.

Drullufúlt þar sem Liverpool voru klárlega betra liðið, sprengdu vörn Arsenal hvað eftir annað, en púllararnir gerðu sig seka um varnarmistök – fjórum sinnum (að minnsta kosti þrisvar…). Arshavin var ótrúlegur.

Þeir sem halda því ennþá fram að Liverpool séu leiðinlegt og varnarsinnað fótboltalið geta étið það sem úti frýs.

Eva Þórey

Brugðum okkur til ömmu og afa á Setberginu og stelpurnar fóru í pottinn.

Snjáldurskjóðan og myndir

Las það á tæknibloggi (nördabloggi) í morgun að Facebook er að innleiða nýtt kerfi fyrir geymslu á myndum á þeim ágæta vef. Ef maður kann tæknilingóið er þessi nýja lausn ansi flott en ég ætla ekki að fara út í þá sálma hér.

Það sem kom mér á óvart er magnið af myndum sem dælt er inn á Snjáldurskjóðuna: ríflega 850 milljón myndir á mánuði! Það gerir um það bil 27.500.000 myndir á dag – rúmlega ein milljón mynda á klukkustund.

Það er alveg hellingur… jafnvel glás.

Bíó, fermingaveisla og grill

Fjölskyldan skellti sér í bíó um helgina að sjá Monsters vs Aliens. Fórum á 3D sýninguna klukkan eitt á laugardaginn og var einróma dómur fjölskyldunnar að myndin hefði verið frábær í alla staði. Eva Þórey var reyndar hundfúl að þurfa skila þrívíddargleraugunum í lok myndar. Ég stakk hins vegar mínum í innanávasann og datt ekki til hugar að skila þeim – borgaði fyrir þetta fúlgur fjár.

Fyrir myndina fengum við okkur að borða á Pizza Hut en eftir að hafa greitt reikninginn er ljóst að þangað förum við ekki aftur af frjálsum vilja; hvorki maturinn né “þjónustan” var virði þeirra þúsundkalla sem púngað var út.

Kíktum í fermingaveislu vorblíðunni í gær sem Rafn Kristófer og fjölskylda hélt á Eyrarbakka.

Helginni lokað með grillveislu sem Grétar Ingi bauð til á Setberginu.

Við Helena horfðum á myndina Yes Man í gærkveldi. Ágætis ræma svo sem, kom sér vel að ég gerði ekki neinar sérstakar væntingar til hennar þrátt fyrir að vera aðdáandi Jim Carrey.