Google luv

Nýlega uppgötvaði ég hve undursamlega fítusa Google býður uppá. Google er nefnilega ekki bara leitarvél. Hef reyndar lengi vitað af dagatalinu og myndavefnum (Picasa) en fyrir stuttu fór ég að kynna mér betur aðrar þjónustur.

GMail er grunnurinn að öllum þjónustum hjá Google. Ég er búinn að stilla gmeilinn þannig hann sæki póstinn minn frá jonoskar.net. Uppsetning og leit í innboxinu er með eindæmum vel úr garði gerð og viðmótið sérlega hraðvirkt.

Google reader er skylda fyrir þá sem fylgjast með mörgum bloggum. Lesarinn gerir þér kleift að fylgjast með uppháhaldsbloggunum þínum á einum stað; séu þau á annað borð með RSS efnisveitu. Bloggið okkar líður því miður fyrir leti undirritaðs og býður ekki upp á RSS veitu. Ég er þó með nýjan vef fyrir okkur í smíðum sem mun meðal annars bjóða upp á RSS efnisveitu.

Google calendar nota ég meðal annars til að muna hvenær Eva Þórey er í fimleikum og Helena er í skólanum. Skrái þar afmælis-, hátíðis- og aðra merkisdaga. Það er meira segja hægt að láta dagatalið senda sér áminningar í SMS. Mögulegt er að deila dagatalinu með vinum og kunningjum sem hafa gmail netfang.

Google Documents býður meðal annars upp á ritvinnslu, töflureikni (Excel) og glærur. Afskaplega einfalt er að útbúa skjal og dreifa því til dæmis á PDF sniði. Snilldin ein.

Picasaweb er myndavefur en líkt og Flickr er plássið takmarkað fyrir fría reikninga. Ég persónulega nota ekki picasaweb heldur heimasmíðaða myndavefinn okkar. Hægt er að hlaða niður forritinu Picasa á tölvuna sem nýtist afar vel í einfalda myndvinnslu. Picasa er hraðvirkt og býður upp á að hlaða myndum beint á Picasaweb vefinn á einfaldann hátt og þjónar sínu hlutverki vel.

Síðast en ekki síst verður að nefna Google Analytics þjónustuna sem ég nota sem teljara fyrir vefninn okkar. Þjónustan býður upp á gríðarlega fjölbreytta sýn á heimsóknir og hegðun gesta á vefnum þínum. Er skrefi framar en aðrir teljarar, svo sem StatCounter sem ég notaði lengi.

Snilldin við þetta allt saman að um leið og þú hefur skráð þig fyrir GMail netfangi hefur þú aðang að hinum þjónustunum um leið (gæti þurft eitt til tvö skref í viðbót). Og þetta er allt frítt.

Prófaðu Google þjónusturnar, þú munt ekki sjá eftir því.

(Grettir félagi minn deilir aðdáun minni á Google þjónustum.)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE