Færslur í March 2009

Vöðvabólga

Undanfarna daga og vikur hefur vöðvabólga í hálsi og herðum verið að byggjast upp. Vaknaði með dúndrandi hausverk á sunnudagsmorgun, dæmigerðan þynnkuhausverk þrátt fyrir að hafa ekki drukkið dropa af áfengum vökva á laugardagskveldinu.

Nú get ég varla hreyft höfuðið.

Hver stendur eiginlega fyrir þessu?!

Google luv

Nýlega uppgötvaði ég hve undursamlega fítusa Google býður uppá. Google er nefnilega ekki bara leitarvél. Hef reyndar lengi vitað af dagatalinu og myndavefnum (Picasa) en fyrir stuttu fór ég að kynna mér betur aðrar þjónustur.

GMail er grunnurinn að öllum þjónustum hjá Google. Ég er búinn að stilla gmeilinn þannig hann sæki póstinn minn frá jonoskar.net. Uppsetning og leit í innboxinu er með eindæmum vel úr garði gerð og viðmótið sérlega hraðvirkt.

Google reader er skylda fyrir þá sem fylgjast með mörgum bloggum. Lesarinn gerir þér kleift að fylgjast með uppháhaldsbloggunum þínum á einum stað; séu þau á annað borð með RSS efnisveitu. Bloggið okkar líður því miður fyrir leti undirritaðs og býður ekki upp á RSS veitu. Ég er þó með nýjan vef fyrir okkur í smíðum sem mun meðal annars bjóða upp á RSS efnisveitu.

Google calendar nota ég meðal annars til að muna hvenær Eva Þórey er í fimleikum og Helena er í skólanum. Skrái þar afmælis-, hátíðis- og aðra merkisdaga. Það er meira segja hægt að láta dagatalið senda sér áminningar í SMS. Mögulegt er að deila dagatalinu með vinum og kunningjum sem hafa gmail netfang.

Google Documents býður meðal annars upp á ritvinnslu, töflureikni (Excel) og glærur. Afskaplega einfalt er að útbúa skjal og dreifa því til dæmis á PDF sniði. Snilldin ein.

Picasaweb er myndavefur en líkt og Flickr er plássið takmarkað fyrir fría reikninga. Ég persónulega nota ekki picasaweb heldur heimasmíðaða myndavefinn okkar. Hægt er að hlaða niður forritinu Picasa á tölvuna sem nýtist afar vel í einfalda myndvinnslu. Picasa er hraðvirkt og býður upp á að hlaða myndum beint á Picasaweb vefinn á einfaldann hátt og þjónar sínu hlutverki vel.

Síðast en ekki síst verður að nefna Google Analytics þjónustuna sem ég nota sem teljara fyrir vefninn okkar. Þjónustan býður upp á gríðarlega fjölbreytta sýn á heimsóknir og hegðun gesta á vefnum þínum. Er skrefi framar en aðrir teljarar, svo sem StatCounter sem ég notaði lengi.

Snilldin við þetta allt saman að um leið og þú hefur skráð þig fyrir GMail netfangi hefur þú aðang að hinum þjónustunum um leið (gæti þurft eitt til tvö skref í viðbót). Og þetta er allt frítt.

Prófaðu Google þjónusturnar, þú munt ekki sjá eftir því.

(Grettir félagi minn deilir aðdáun minni á Google þjónustum.)

Tóndæmi

Ég held mikið upp á þessi tvö um þessar mundir:

YouTube Preview Image

og

YouTube Preview Image

Ég vona að myndböndin hangi inni á YouTube. Það virðist vera einhver lenska að myndbönd séu fjarlægð af vefnum eftir ég hef linkað þau hér….

Hallærislegt

Mikið afskaplega er “viðtalið” við ædol keppandann Gylfa Þór hallærislegt á visir.is. Viðtalið má nálgast hér: http://www.visir.is/article/20090330/LIFID01/932337465.

*Kjánahrollur*

Solla Stirða í norðurljósum

Ég var að gera verkefni í skólanum þar sem við þurftum að breyta myndum og þetta er ein af þeim.

Ég setti Ásdísi inn á norðurljósamyndina. Gaman að kunna að leika sér svona með myndir ;)

Svona eiga fótboltalýsingar að vera

Þau voru ekki minni lætin í mér og Gesti bróður yfir leiknum á laugardaginn…

YouTube Preview Image

Góð vika

…hjá Liverpool.

Vinna Real Madrid 4 – 0 á Anfield og Man. Utd. 1 – 4 á Old Trafford.

Að vinna 2 af bestu fótboltaliðum í Evrópu í dag með tölunum 8 – 1 er nú bara afar góður árangur. Verst þeir spiluðu ekki svona vel í allan vetur.

Læt fylgja með myndband sem sýnir stemninguna á Anfield fyrir leikinn gegn Real Madrid.

Við Helena ætlum í pílagrímsferð þangað einhvern daginn sjáið til.

YouTube Preview Image

Thai grill

Gestur og Dai buðu okkur í thai grill í kvöld. Nautakjöt og svínakjöt ásamt soðnu grænmeti og núðlum á borðum.

Þetta var afar ljúffengt og með heimatilbúnu sweet chili (extra hot) sósunni frá Dai hófst þetta í aðrar hæðir.

Ég og Helena borðuðum okkur södd – ég þó meira en hún eins og alltaf. Hafði ekki einu sinni lyst á G&T-inum sem Gestur bauð mér og þykir það miður.

Helena afmælisstelpa

Til hamingju með afmælið í dag elsku Helena/mamma!

Jón Óskar, Eva Þórey og Ásdís Karen

Ásdís Karen veik

Ásdís Karen var farin að hósta í gær og komin með kvef. Í nótt hóstaði hún stanslaust og fékk með þessu hita. Í morgun lék hún sér með Bratz og þegar hún hélt að enginn sæi til, lét hún Bratz-stelpu (var það Cloe?) og Bratz-strák kyssast. Efast ekki um að sá leikur sé runninn undan rifjum eldri systur hennar.

Ég sem var að vona að veikindakvótinn væri búinn þennan veturinn.