Eva Þórey og Dagrún Inga voru Gana-konur

Ásdís Karen var Solla Stirða og Bergur Ómar sjóræningi

Eva Þórey og Dagrún Inga voru Gana-konur

Ásdís Karen var Solla Stirða og Bergur Ómar sjóræningi

…og Dagrún Inga kom í heimsókn til Evu Þóreyjar. Það var drullumallað.

Og við Ásdís Karen skelltum í pönnsur á nýja pönnsujárninu.

Stundum eru rólegir sunnudagar alveg ágætir.
Í afmælum og fjölskylduboðum hefur eplakornflexkakan sem Helena útbýr af kostgæfni vakið mikla lukku.
Vegna fjölda áskorana birtum við uppskriftina hér. Verði ykkur að góðu.
Eplakornflexkaka
Eplin rifin og sett í smurt, eldfast mót. Súkkulaði eða mars (eða bæði eins og við gerum stundum) brytjað niður og sett yfir eplin. Helmingi af sykri og kanil stráð yfir. Hveiti, salt, rest af sykri, kanill og kornflex blandað saman og brætt smjör hrært saman við.
Þessu öllu er hellt yfir eplin og sett í 170 – 180°C heitan ofn í 30 mínútur.
Ég var að þrífa inn í eldhúsi í gær og þá kemur Eva Þórey til mín og bankar á ísskápinn. Hún er oft í hlutverkjaleikjum og oftar en ekki fæ ég lítið hlutverk. Í þetta skipti var hún að banka hjá mér því ég var dagmamman sem átti að passa barnið hennar. Ég tek við barninu og set það við eldhúsborðið og held áfram að þrífa. Svo auðvitað er ég dottin út úr leiknum og fer að þrífa inn í svefnherbergi…kemur ekki Eva Þórey askvaðandi með miða í höndunum og setur í rassvasann hjá mér og segir: Þú skalt sko lesa þennan miða.
Á miðanum stóð:
akverju fórstu frá barninu mínu
seigðu já eða nei
kígdu hinumeigin
ég kíki hinu megin á miðann og þar stóð:
kvar ertu
kveðja
Silíja 
Ég sem sagt steingleymdi barninu sem ég átti að vera að passa og Eva Þórey var nú ekki par hrifin. Þannig að það er spurning hvort ég sé á réttri hillu starfslega séð…hehehe
Ég held ég fái alla vega ekki að passa dúkkurnar hennar Evu Þóreyjar í bráð.
Fór á rúntinn í gærkveldi með myndavélina að æfa mig í myndatöku af stjörnubjörtum himni. Heiðskír himinn en líkt og í fyrra skiptið var full tungl. Birtan af tunglinu og langur lýsingartími gefa af sér myndir sem virðast vera teknar um miðjan dag – sennilega gefur það betri niðurstöður þegar tunglið er minna, jafnvel nýtt.
Rúnturinn varð sérlega ánægjulegur þegar norðurljós birtust á himni norðan megin við þorpið.

Ingólfsfjallið vinstra megin, ljós frá Selfossi fyrir miðju og ljós frá Eyrarbakka hægra megin.

Tekið vestan við þorpið, í norðurátt. Litli ljósdepillinn vinstra megin á myndinni er frá Bláfjöllum.

Sama staðsetning og að ofan.

Trönur vestan við þorpið, tekið í suðurátt.
Allar myndir eru teknar á 30 sekúndum, ISO 200 – 400.
Undanfarnar vikur hefur verið í gangi hrekkjakeppni milli hópa í deildinni. Hóparnir hafa keppst við að hrekkja hvorn annan, sumir meira en aðrir.
Hópurinn minn hefur sloppið nokkuð vel – þangað til í morgun. Öll borðin í herberginu voru þakin litlum frauðkúlum, litlum andskotum sem rafmagnast og festast við allt mögulegt.
Hér í morgun hefur her samstarfsmanna hjálpað okkur við tiltekt og eftir tvo tíma er ryksugan enn í gangi – enn glás eftir.
Sökudólgarnir hafa ekki fundist en munu fá að gjalda verka sinna.
Ég var búinn að hreinsa til af mínu borði þegar ég mundi eftir því að síminn minn er útbúinn myndavél. Myndin sem fylgir er því af borði hópfélaga.

Tvö borð fengi verri útreið en hin og var búið að girða af með plasti og pappakassa og fylla upp með ógeðinu.
Nýlegar athugasemdir