Færslur í January 2009

Pirringur

Ég horfði á fótboltaleik í gær.

Liðið mitt (og fjölskyldunnar) gerði enn eitt jafnteflið og er nú hægt og bítandi missa scum júnæted fram úr sér, eftir að hafa vermt toppsætið í nokkrar vikur.

Pirringurinn var orðinn svo mikill þegar á leikinn leið að ég var um það bil að springa – ég missti það út úr mér við Helenu að nú væri ég hættur að horfa á fótboltaleiki. Skiptingar stjórans voru vægast sagt undarlegar; Torres og Gerrard liklega hvíldir fyrir leikinn á móti chel$ki um helgina en í huga Rafa virðast þrjú stig á móti chel$ki vera mikilvægari en þrjú stig á móti þessi fátans Wigan liði.

Það er ekki alltaf dans á rósum að vera knattspyrnuunnandi – en erfiðara þó er að vera Liverpool aðdáandi.

Eins gott að leikurinn um helgina vinnist. Líklegast fer hann þó jafnt.

More cowbell

Fékk þennan tengil sendan í pósti í gær.

Sketch úr Saturday Night Live þar sem meðal annars Will Ferrell og Christopher Walken fara með hlutverk.

“I’ve got a fever, and the only prescription is MORE COWBELL!”

Will Ferrell Cowbell

 

sinfónía fólksins

Í þessum skrifuðu orðum er glás af fólki að mótmæla fyrir utan alþingishúsið – og gluggann hjá mér.

Trukkalúðurinn reið á vaðið, í kjölfarið fylgdi þungur taktur trommunnar og melódía sírenunar hljómar undir. Pottasláttur, hringlur og önnur óútskýranleg hljóð fullkomna verkið.

Mótmælendaskiltum og íslenska fánanum er veifað og snjóboltum kastað í þinghúsið.

Þrusustemming.

Myndataka að kveldi

Helena gaf mér þrífót í jólagjöf. Ég var búinn að nöldra lengi um að ef ég ætti þrífót þá gæti ég prófað mig áfram með ljósmyndadelluna. Fyrsta eldraun þrífótsins var á gamlárskvöld og tók ég meðal annarra flugeldamyndina í færslunni hér á undan með myndavélina á honum.

Skaust út í gærkveldi á gangstíginn hér rétt hjá og prófaði mig áfram með myndatöku af stjörnubjörtum himni. Reyndar var fullt tungl þannig birtan/rökkrið var ekki upp á sig besta en þessar tvær fannst mér skástar. Á fyrri myndinni var myndavélinni beint í átt að Geitafelli – ljósbjarminn sem kemur upp frá fjöllunum eru ljós frá Reykjavík. Seinni myndin er af kofanum með túnglið drottnandi yfir.

 

Ljósop: f/6.3 | Lýsingartími: 30 sec | ISO: 400 | Brennivídd: 18mm

 

Ljósop: f/7.1 | Lýsingartími: 25 sec | ISO: 200 | Brennivídd: 18mm

Gleðilegt nýtt ár

 

 

 

 

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE