Færslusafn 2008

Skynjarar

Það er afar algengt að Eva Þórey komi uppí til okkar á næturnar. Undanfarið hefur hún verið að koma uppí fyrir tólf – við rétt farin að festa svefn sjálf.

Nú er klukkan að verða hálfeitt, við ekki komin uppí, og engin hreyfing á henni.

Það er eins og barnið hafi innbyggða hreyfiskynjara.

Nóvember afmæli

Nóvember er annríkur þegar að afmælum kemur í fjölskyldunni. Því er ekki úr vegi að óska afmælisbörnum mánaðarins til hamingju með afmælin sín.

Til hamingju með afmælið:

  • Kjartan hennar Gógóar, 6. nóv
  • Ég sjálfur, 9. nóv
  • Kolla hans Palla, 10. nóv
  • Kalli (afi), 12. nóv
  • Jói (afi), 20. nóv
  • Grétar Ingi, 21. nóv ( Í DAG )
  • Ómar Páll, 26. nóv

Að auki skal kveðju komið á framfæri við vinafólk og hjónakornin Unni Björk, 16. nóv, og Örn, 17. nóv.

Pabbi á afmæli í dag, pabbi á afmæli í dag

Elsku pabbi til hamingju með afmælið í dag.

Þínar stelpur

Brunaæfing í Glasgow

Sunnudagurinn í Glasgow var eftirminnilegur. Við vöknuðum snemma og röltum út í Somerfield að kaupa í morgunmatinn, eins og við gerðum alla morgnana. Komum hins vegar að læstum dyrum og uppgötvuðum okkur til mikillar gleði að vetrartíminn hafði gengið í garð um nóttina og við því vaknað í raun klukkutíma of snemma.

Skömmu fyrir klukkan ellefu fóru brunabjöllurnar að æpa hver ofan í aðra. Ég kíkti fram á gang en sá öngvan en svona til öryggis ákváðum við að rölta okkur niður stigann (“DO NOT USE IN CASE OF FIRE” miði á lyftunni) af elleftu hæð. Hittum fyrir aðra hótelgesti sem voru jafn hvumsa og við.

Líkt og dagana á undan var mígandi rigning og var því hótelgestum, þar á meðl okkur, smalað saman í skjól undir brú við hlið hótelsins þar sem við biðum átekta. Í hópnum voru mis-vaknaðir hótelgestir en allir tóku uppákomunni með stakri ró.

Vitanlega var slökkvilið Glasgow borgar kallað á staðinn sem rannsakaði vettvang gaumgæfilega.

Í ljós kom að sennilega hafi einhver kveikt sér í sígarettu inn á herbergi sem hrundi atburðarásinni af stað. Yndislegt.

Síðar sama dag horfðum við á Liverpool – Chelsea á hótelpöbbnum þar sem Liverpool unnu sigur. Það var afskaplega notalegt.

 

Slökkvibifreið fyrir utan Jury’s Inn hótelið.
Ef myndin prentast vel sést í Helenu gægjast fram hjá regnhlíf.

 

Cooliris

Cooliris (áður PicLens) er magnað fyrirbæri. Cooliris er forrit, viðbót við vafra (best í Firefox), sem gerir þér kleift að skoða myndir og myndbönd á þrívíddarvegg. Þekktir myndavefir eins og Flickr og Picasa frá Google styðja þetta forrit auk YouTube og sífellt bætist í flóruna.

Nú hefur myndavefur fjölskyldunnar bæst í þennan myndarlega hóp.

Hafið þér ekki nú þegar Cooliris viðbótina á tölvu yðar hvetjum vér yður til að bæta úr því hið snarasta og sjá dýrðina.

Fyrir þá sem hafa Cooliris:
- Vippið yður á myndavefinn, opnið eitthvað albúm.
- Þegar þér færið músarbendilinn yfir mynd kemur upp lítil táknmynd (icon) yfir myndina.
- Smellið á þessa táknmynd og þá opnast Cooliris og sýnir yður myndirnar í albúminu á títtnefndum þrívíddar myndavegg.

Sniðugt!

Myndin hér að neðan sýnir hvernig tákmyndin kemur yfir mynd þegar músarbendillinn er færður yfir hana.

Allar ábendingar og/eða athugasemdir vel þegnar. Bendum á “athugasemdir” til slíks gjörnings.

 

Skinkuhornabakstur

Helena og Eva Þórey brettu upp ermar sl. sunnudag og hófust handa við bakstur á skinkuhornum. Mér var sagt að skipta mér ekki af og gat því lítið annað gert en að skrá heimildir um gjörninginn.

Vinnuhesturinn tilbúinn í slaginn, Kenwood kMix græja sem er notuð amk einu sinni í viku (þegar húsbóndinn setur í pizzadeig).

 

Lærlingurinn fylgist ábúðarfull með og lærir rétt handtök.

 

“Þetta verður bara fyrir ykkur pabba”, sagði Eva Þórey. Leist ekki á 3 tegundir í fyllingunni – alveg nóg að hafa bara skinkumyrjuna.

 

Lærlingurinn montin/hissa yfir því að fá úthlutað verkefni; að rúlla upp og raða á plötuna.

Hún er gríðarlega efnileg stúlkan.

 

Fyrsti skammtur kominn í ofninn og lítur afskaplega vel út.

 

Lærlingurinn úrvinda eftir törnina Laughing

 

Skrásetjari heimilda viðurkennir að það vanti tilfinnanlega mynd af afrakstrinum eftir hann kom út úr ofninum. Græðgin varð hins vegar yfirsterkari og myndavélin fékk að víkja – enda gengdi pistlahöfundur tveimur hlutverkum þennan dag; heimildaritari og yfirsmakkari.

Seinn að fatta

…en mikið afskaplega er Sex on Fire með Kings of Leon gott lag [ sjá YouTube ].

Nýja platan, Only by the Night, er afbragðs góð. Mæli með henni.

Edinborg

Skruppum til Edinborgar sl. föstudag (þegar við vorum í Glasgow auðvitað), þar sem þessi mynd var tekin. Fiktaði við hana í myndvinnsluforriti og fannst þessi útgáfa koma nokkuð vel út.

Dulúðleg og seiðmögnuð.

Döpur frammistaða

Mig rak í rogastans þegar ég uppgötvaði að síðasta færsla er ríflega mánaðargömul. Finnst þetta döpur frammistaða af okkar hálfu.

Það er ekki eins og það hafi ríkt einhver gúrkutíð hérna megin borðsins, síður en svo, ástandið hefur frekar verið þannig að amk ég hef ekki haft löngun eða vilja til að skrifa eitthvað hingað inn.

En ætlunin er að bæta úr því.

Komum til baka frá Glasgow í gærkveldi eftir notalega helgarferð síðan á fimmtudagsmorgun, meira af því síðar ásamt öðrum molum.

Brúðkaupsmyndir komnar – smá sýnishorn

 

 

Erla Stefáns tók myndirnar

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE