Öfundsverðir jólasveinar

Mikið held ég það sé gaman að vera jólasveinn og gefa í skóinn.

Ég man þegar ég var peyji hve áköf eftirvæntingin var að fá í skóinn – mikið afskaplega var stundum erfitt að sofna. Gleðin var innileg þegar skórinn var skoðaður morguninn eftir þar sem glaðningur frá jólasveininum beið, ef maður var þægur.

Við bræðurnir fengum reyndar allir í skóinn á aðfararnótt aðfangadags þangað til við fluttumst að heiman og alltaf það sama: kók og prins.
Frá sömu jólasveinum og höfðu glatt okkur í bernsku.

Læt fylgja með gamla tuggu; jútjúb vídjó af rokkaðasta jólhúsi sögunnar:

YouTube Preview Image

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE