Brunaæfing í Glasgow

Sunnudagurinn í Glasgow var eftirminnilegur. Við vöknuðum snemma og röltum út í Somerfield að kaupa í morgunmatinn, eins og við gerðum alla morgnana. Komum hins vegar að læstum dyrum og uppgötvuðum okkur til mikillar gleði að vetrartíminn hafði gengið í garð um nóttina og við því vaknað í raun klukkutíma of snemma.

Skömmu fyrir klukkan ellefu fóru brunabjöllurnar að æpa hver ofan í aðra. Ég kíkti fram á gang en sá öngvan en svona til öryggis ákváðum við að rölta okkur niður stigann (“DO NOT USE IN CASE OF FIRE” miði á lyftunni) af elleftu hæð. Hittum fyrir aðra hótelgesti sem voru jafn hvumsa og við.

Líkt og dagana á undan var mígandi rigning og var því hótelgestum, þar á meðl okkur, smalað saman í skjól undir brú við hlið hótelsins þar sem við biðum átekta. Í hópnum voru mis-vaknaðir hótelgestir en allir tóku uppákomunni með stakri ró.

Vitanlega var slökkvilið Glasgow borgar kallað á staðinn sem rannsakaði vettvang gaumgæfilega.

Í ljós kom að sennilega hafi einhver kveikt sér í sígarettu inn á herbergi sem hrundi atburðarásinni af stað. Yndislegt.

Síðar sama dag horfðum við á Liverpool – Chelsea á hótelpöbbnum þar sem Liverpool unnu sigur. Það var afskaplega notalegt.

 

Slökkvibifreið fyrir utan Jury’s Inn hótelið.
Ef myndin prentast vel sést í Helenu gægjast fram hjá regnhlíf.

 

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE