Færslur í September 2008

Brúðkaupsmyndir komnar – smá sýnishorn

 

 

Erla Stefáns tók myndirnar

Danskennsla

Hingað til hafa svíar verið þekktir fyrir ABBA, Volvo, IKEA og Absolut vodka.

Best geymda leyndarmáli svíanna verður hins vegar uppljóstrað hér – Stampa med Leroy, gjörsvovel:

YouTube Preview Image

Ásdís Karen lasin

Eva Þórey var ekki búin að vera frísk lengi þegar yngri systir hennar tók við kyndlinum.

Svipuð einkenni og hjá stóru systur; hósti, hálsbólga og hiti og svaf lítið í nótt.

Vonum innilega að hún verði fljót að hrista þetta af sér.

Snjór í fjöllum

Sá þetta þegar ég fór í morgun að sækja Fréttablaðið.

Brrr…. veturinn nálgast of hratt.

Captain Fantastic: Stevie G

Fann þetta á vísir.is: Bestu mörk Steven Gerrard

Unaðslegt á að horfa.

Reyndar er markið sem hann skoraði á móti Marseilles í vikunni ekki í þessari upptalingu en því verður bætt úr hér:

[ YouTube vídjó fjarlægt ]

EDIT:
Vegna réttindamála hefur vídjóið verið fjarlægt af YouTube, þökk sé UEFA.

Eva Þórey lasin

Hóstaði og kvartaði um í hálsinum í nótt og var sjóðandi heit á enninu.

Það var afskaplega sárt að senda hana í rúmið sitt þegar hún bað um að kúra á milli, sárlasin og kvalin greyið. En þar sem Dagrún Inga vinkona hennar gisti hjá okkur í nótt kom ekkert annað til greina. Eftir stílagjöf og hjásetu móður hennar sofnaði hetjan í sínu rúmi.

Lukkulega var hún hressari í morgun – þær vinkonur léku sér eins og enginn væri morgundagurinn.

Fésbók

Eftir gríðarlegan hópþrýsting vorum við hjónin tilneydd að skrá okkur á fésbókina.

Í sannleika sagt hafði ég aldrei trú á þessum social networking dæmi en þetta verður meira spennandi með hverjum degi sem líður.

Ef þú ert skráð/ur á fésbókina (og við erum ekki nú þegar ‘vinir’), leitaðu okkur endilega uppi.

Tannmissir og íþróttaskóli

Sætar frænkur á Ljósanótt

Um síðustu helgi skunduðum við á ljósanótt í Keflavík. Dagurinn alveg flaug frá okkur en við náðum þó að kíkja aðeins á lífið. Hjörleifur bróðir var að spila og syngja í einni sjoppunni og hlustuðum við á nokkur lög áður en við fórum í skessuhellinn að skoða skessuna sem þar býr. Ásdísi fannst þetta mest spennandi en var samt ekki alveg viss hvort hún ætti að vera hrædd eða ekki. Í lok dags var okkur svo boðið í mat hjá pabba en hann töfraði fram kjúkling handa okkur og ekki sveik sú máltiíð okkur frekar en fyrri daginn.

Í dag byrjaði Ásdís í íþróttaskólanum. Við Eva þórey fórum með henni og Eva Þórey var dugleg að hjálpa systur sinni í gegnum æfingarnar. Ásdísi fannst mikið gaman og var eins og hún hefði verið í æfingabúðum þarna frá fæðingu. Enda er hún búin að bíða eftir að komast sjálf inn á völlinn eftir að hafa fylgst með stóru systur á æfingum síðustu vetur.

Eva Þórey missti tönn í nótt. Þegar hún vaknaði fann hún að tönnina vantaði svo upp hófst mikil leit að henni. Við litum undir koddann, undir sængina og allt í kring en ekki fannst tönnin. Það var ekki fyrr en Eva Þórey segir að það sé einhver tönn upp í henni sem hreyfist aðeins og er eins og hún sé á nýjum stað. Þá leit ég upp í hana og sá að tönnin sem hún hafði misst um nóttina hafði fest á milli tanna í efri góm og sat þar blýföst. Það þurfti átök til að ná henni út. Við vorum alla vega fegin að hún fór ekki ofan í maga Smile Eva Þórey var aðalega fegin því nú getur hún sett hana undir kodda í nótt og fengið heimsókn frá tannálfinum.

 

Fyrirsæta

Þegar hún sá myndavélina hallaði hún undir flatt, brosti blítt og sagði síííííísss….

Gönguferð

Fengum okkur stuttan göngutúr í góða veðrinu og tókum myndavélina með.
Reyndar gengum við Helena, við eigum ekki svona flott hlaupahjól eins og þessar skvísur!

Heiðrún, Sara Margrét og Sylvía Björk fara aftur til Ítalíu á laugardagsmorgun og það verður heldur betur missir af þeim. Þær eru nú búnar að vera á Íslandi í um einn og hálfan mánuð og við farin að venjast því að hafa þær nálægt okkur.