Úff þá er sælan búin.
Við (og bloggið) erum búin að vera í sumarleyfi síðan 9. júlí. Mikið afskaplega er þetta búið að vera næs. Hins vegar gerðum við ekki nærri þvi allt sem við ætluðum okkur í fríinu. Það sem við áorkuðum er:
- Útilega Sandártungu (Þjórsárdal) með bræðrum mínum
- Ættarmót hjá systkynum mömmu Langaholti á Snæfellsnesi. Reyndar fórum við Eva Þórey bara tvö þar sem Ásdís Karen var lasin
(
- Útilega Flúðum
- Ættarmót hjá pabba Helenu Árnesi
- Útilega Iðufelli með Snjólaugu og Kalla, Heiðrúnu, Söru Margréti og Sylvíu Björk
- Máluðum 3 hliðar á húsinu, alla glugga, pallinn og skjólveggi
- Ég stóð vakt í Mánanum ca. tvo daga um verslunarmannahelgina þar sem unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Þorlákshöfn. Það var afar mikið að gera.
Síðast en ekki síst létum við loksins pússa okkur saman síðastliðinn laugardag, 9. ágúst, í viðurvist fjölskyldu og vina. Þeim sem heiðruðu okkur með nærveru sinni og veittu okkur ómetanlega hjálp við undirbúninginn þökkum við innilega fyrir. Einhverntímann næstu daga setjum við inn myndir og frásögn frá þessum frábæra degi.


Þetta er enn að síast inn og loksins get ég á löglegan hátt kallað Helenu konuna mína.









Innilega til hamingju með brúðkaupið.
Sá myndir af ykkur á síðunni hjá Heiðu og þið voruð alveg gullfalleg á stóra deginum
kv.Bidda frænka
P.s mætti ég stela myndinni af ykkur frá því á fjölskyldumótinu í Árnesinu og setja hana á Sæbólssíðuna sem við erum að gera??
Heiða ætlaði að senda ykkur slóðann og lykilorðið þar inn svo þið getið skoðað.
Innilega til hamingju með daginn ykkar á laugardaginn. Hlakka til að sjá myndir af ykkur, var búin að sjá nokkrar á síðunni hjá Heiðu og þið voruð bara flottust(“,)
Koss og knús frá mér og mínum
Lóa og gengið(“,)
Takk kærlega fyrir
Alveg sjálfsagt Birgitta, gaman að vera með eina svona Sæbólssíðu, við munum kíkja þangað reglulega.
Vá!!! Mikið rosalega eruð þið flott hjón:) Kjóllinn alveg æði!! Og litlu prinsessurnar alveg guðdómlega flottar:)
Hamingjuóskir enn og aftur;)
Æðislegar myndir!!!!! enn og aftur til lukku með daginn…..