Verslunarmannahelgin

Frænkurnar í Slakka, Laugarási


Þá er þessari verslunarmannahelgi lokið. Við byrjuðum helgina á því að fara í einnar nætur útilegu í Laugarás með mömmu, Kalla, Heiðrúnu og stelpunum hennar. Fengum líka þetta frábæra veður þar og skemmtum okkur konunglega. Á laugardeginum skunduðum við heim þar sem nóg var að gera hjá tengdó í Mánanum. Jón Óskar fór að hjálpa til þar sem allir landsmótsgestir voru svona líka svakalega hungraðir að pizzurnar ruku út. Við sáum lítið af Jóni Óskari það sem eftir lifði af helginni. Við mæðgur vorum bara á rölti um mótssvæðið ásamt mömmu og co. og enduðum með því að grilla á sunnudagskvöldið heima hjá Rögnu og Begga. Annars var þetta mjög róleg helgi, hjá okkur mæðgum alla vega.

Núna tekur svo við fjörug vika þar sem það er nánast korter í brúðkaup…þetta er bara að bresta á.  Það er ýmislegt sem við eigum eftir að gera og á það náttúrulega allt eftir að reddast í þessari viku…eða það er alla vega bara best að hugsa það þannig.Wink

Ein farin að finna fyrir smá stressi

8 athugasemdir við “Verslunarmannahelgin”

  1. Ragna says:

    Flott mynd af frænkunum. Og mundu svo ekkert stress svo hringurinn passi! ;)

  2. Bebba says:

    hægan hægan! Er verið að fara að ganga í hjónaband? :) Líst vel á það ef svo er ;) Hvenær er settur dagur?

    …Annars ætlaði ég bara að kasta á ykkur kveðju ;)

    *Hjútsknús*

  3. Helena says:

    Jújú Bebba mín, nú á loksins að fara láta pússa sig saman eftir 15 ára samband :) . Brúðkaupið er núna á laugardaginn þann 9. ágúst ;)

  4. Bebba says:

    Glæsilegt :) Til hamingju með það og gangi allt vel á laugardaginn ;)

  5. Anna og Baddi says:

    Halló Helena.Mikið er gaman að skoða ykkur svona í tölvuni.Til hamingju með morgundarinn.Kveðja Anna og Baddi

  6. Stella says:

    jæja, til lukku með daginn í gær – allt farið á þann veg sem planað var!! sögðuð já og sonna……..!!!!!

    Hlakka til að fá að sjá myndir hér inni sem fyrst =O)

  7. Sæborg says:

    Til hamingju með gærdaginn kæra vinkona:)
    Loksins orðin Frú;)
    Heyri í þér við tækifæri!!

    Kv, Sæborg.

  8. Helena og Jón Óskar says:

    Þökkum kærlega fyrir :)
    Kv. FRÚ Helena :)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE