Seinni hluti brúðkaupsmynda, brúðkaupsveislan, kominn inn í myndir.
Gjörsvovel.
Seinni hluti brúðkaupsmynda, brúðkaupsveislan, kominn inn í myndir.
Gjörsvovel.
Þessi skemmtilega og fallega stelpa er 7 ára í dag.

Við héldum veislu henni til heiðurs fyrir fjölskylduna á laugardaginn síðastliðinn.
Veisla fyrir bekkjarfélaga og vini hennar verður nú í dag – og hún getur ekki beðið!
Til hamingju með daginn elsku Eva Þórey okkar.
Pabbi, mamma og Ásdís Karen
P.s. Hér er kakan sem prinsessan fékk í afmælinu sínu (Pabbi hennar bjó hana til
)
Auðvitað valdi hún Hello Kitty


Vorum að fá þessa stórglæsilegu mynd frá Erlu ljósmyndara sem sýnishorn.
Nú verður erfitt að bíða eftir restinni!
Settum inn nokkrar myndir úr athöfninni á Brúðkaupsdaginn og nokkrar sem Kalli tók þegar við vorum í myndatökunni.
Eigum svo eftir að setja inn myndir úr veislunni sjálfri. Það voru teknar yfir 700 myndir þannig að það er úr nógu að velja
.
Annars er nóg af veisluhöldum þessa dagana…Arnór Daði varð eins árs um síðustu helgi og fórum við auðvitað í veislu þangað.
Næst er það svo Eva Þórey en hún verður 7 ára á mánudaginn og ætlum við að halda upp á afmælið hennar á laugardaginn.
Úff þá er sælan búin.
Við (og bloggið) erum búin að vera í sumarleyfi síðan 9. júlí. Mikið afskaplega er þetta búið að vera næs. Hins vegar gerðum við ekki nærri þvi allt sem við ætluðum okkur í fríinu. Það sem við áorkuðum er:
- Útilega Sandártungu (Þjórsárdal) með bræðrum mínum
- Ættarmót hjá systkynum mömmu Langaholti á Snæfellsnesi. Reyndar fórum við Eva Þórey bara tvö þar sem Ásdís Karen var lasin
(
- Útilega Flúðum
- Ættarmót hjá pabba Helenu Árnesi
- Útilega Iðufelli með Snjólaugu og Kalla, Heiðrúnu, Söru Margréti og Sylvíu Björk
- Máluðum 3 hliðar á húsinu, alla glugga, pallinn og skjólveggi
- Ég stóð vakt í Mánanum ca. tvo daga um verslunarmannahelgina þar sem unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Þorlákshöfn. Það var afar mikið að gera.
Síðast en ekki síst létum við loksins pússa okkur saman síðastliðinn laugardag, 9. ágúst, í viðurvist fjölskyldu og vina. Þeim sem heiðruðu okkur með nærveru sinni og veittu okkur ómetanlega hjálp við undirbúninginn þökkum við innilega fyrir. Einhverntímann næstu daga setjum við inn myndir og frásögn frá þessum frábæra degi.


Þetta er enn að síast inn og loksins get ég á löglegan hátt kallað Helenu konuna mína.

Frænkurnar í Slakka, Laugarási
Þá er þessari verslunarmannahelgi lokið. Við byrjuðum helgina á því að fara í einnar nætur útilegu í Laugarás með mömmu, Kalla, Heiðrúnu og stelpunum hennar. Fengum líka þetta frábæra veður þar og skemmtum okkur konunglega. Á laugardeginum skunduðum við heim þar sem nóg var að gera hjá tengdó í Mánanum. Jón Óskar fór að hjálpa til þar sem allir landsmótsgestir voru svona líka svakalega hungraðir að pizzurnar ruku út. Við sáum lítið af Jóni Óskari það sem eftir lifði af helginni. Við mæðgur vorum bara á rölti um mótssvæðið ásamt mömmu og co. og enduðum með því að grilla á sunnudagskvöldið heima hjá Rögnu og Begga. Annars var þetta mjög róleg helgi, hjá okkur mæðgum alla vega.
Núna tekur svo við fjörug vika þar sem það er nánast korter í brúðkaup…þetta er bara að bresta á. Það er ýmislegt sem við eigum eftir að gera og á það náttúrulega allt eftir að reddast í þessari viku…eða það er alla vega bara best að hugsa það þannig.
Ein farin að finna fyrir smá stressi
Nýlegar athugasemdir