Sjómannadagurinn

Laugardagurinn var frábær dagur. Dagskráin byrjaði kl. 13:00 með skemmtisiglingu og fjölskyldan skellti sér í róður með Friðrik Sigurðssyni, ásamt Gesti og fjölskyldu og fleirum. Tekinn var góður hringur ásamt þeim þremur skipum sem fóru líka; Jóni á Hofi, Ársæl og Arnari. Stelpurnar skemmtu sér konunglega og Ásdís Karen skríkti af ánægju á bakaleiðinni þegar siglt var á móti straumi og báturinn dansaði á öldunum. Útgerðin skaffaði kók og prins svo enginn yrði svangur á stíminu.

Okkur fannst undarlegt þegar Arnar, sá fremsti í röðinni, tók skyndilega U-beygju þegar hann nálgaðist hafnarmynnið. Um leið sáum hvar Jón á Hofi rak vélarvana – og var kominn ansi nálægt landi fannst okkur. Það fór þó allt vel, vélin var ræst og skipið sveigði tignarlega frá landi og á eftir okkur að bryggju. Í ljós kom að það átti að leyfa einhverjum krakkanum að ýta á lúðurinn en sá fór takkavillt og ýtti á neyðarstoppið fyrir vélina!

Nutum veðurblíðunnar það sem eftir var dags, þó það hefði verið aðeins of hvasst. Fórum í “nýjan” Fróða og fengum veitingar, horfðum á ökuleikni glæpagengisins á treiler-trukkum, kappróður, reiptog og koddaslag. Allt sem tilheyrir deginum.

Grilluðum saman á Setberginu og lukum deginum með því að fara á tónleika á bryggjunni, þar sem Grétar Ingi spilaði með hljómsveit sinni Svartasker.

Helginni var lokað með bæjarferð á sunnudag þar sem stelpurnar voru skóaðar upp, merkilegt hvað þær slíta þeim fljótt.

Við tókum yfir 400 myndir á laugardeginum, af hinu og þessu, og rjóminn af því verður væntanlega settur í albúmið von bráðar.

Bætt við, 4. júní kl. 18:00:
Mynd af gullfallegum mæðgum í skemmtisiglingu

Ein athugasemd við “Sjómannadagurinn”

  1. Heiða Jóa says:

    Hæ hæ þetta hefur verið skemmtilegur dagur hjá ykkur. Styttist í afmælið hennar Ásdísar K. Sjáumst vonandi bráðlega.
    Kv HJ,KEE & AEE

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE