Hjónaleysin brugðu undir sig betri fætinum og mættu á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka á laugardagskvöld. Nenntum ekki á brennuna vegna veðurs en mættum galvösk á dansiball á Rauða Húsinu þar sem Grétar Ingi og hljómsveit, Svartasker, spiluðu fyrir dansi. Þarna var margt um manninn og mikið afskaplega var gaman að hitta gamla vini sem við höfum ekki hitt í langan tíma. Stelpurnar voru í góðu yfirlæti á meðan og gistu hjá ömmu og afa á Setberginu.
Rúntuðum til Keflavíkur í gær þar sem Hjörleifur bauð til veislu í tilefni afmælis síns. Eva Þórey varð eftir og dvelur í Keflavíkinni hjá afa og ömmu fram á miðvikudag. Vorum seint á ferðinni í gær þannig við horfðum á úrslitaleik EM hjá Heiðu og Agli í Garðabænum. Mikið afskaplega var ljúft að sjá okkar mann, Fernando Torres, tryggja spánverjum EM titilinn.
Til hamingju með afmælið Hjörleifur; gamli svingur ;o)


















Nýlegar athugasemdir