Færslur í May 2008

Grillsísonið

Það er reyndar langt síðan það hófst, mér hefur bara ekki tekist að mynda viðfangsefni á grillinu nægjanlega vel til að setja hingað inn.

Þarna liggur ríflega fjögurhundruð gramma marineruð grísalund, alveg að verða grilluð í gegn. Við hlið hennar – en þó ekki í mynd – eru 3 hnefastórar grillkartöflur, bakaðar í gegn.

Get upplýst ykkur um að þetta var með betri grísalundum sem við hjónaleysin höfum matreitt á þessu heimili.

Ying og Yang

Ásdís Karen röltir í rólegheitum um lóðina hjá ömmu og afa og í bakgrunni er Eva Þórey á hvolfi.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE