Skjálftinn í beinni

Ég er alveg eyðilagður að hafa misst af skjálftanum í gær. Var nýfarinn úr vinnunni og var að keyra miklubrautina við hlíðarnar, svona um það bil, þegar skjálftinn reið yfir. Fann ekkert fyrir þessu en fann fyrir nokkrum eftirskjálftum seinnipartinn og í gærkveldi. Fann tvo pínu kippi þegar ég snæddi seríosið í morgun.

Helena var úti á snúrum og stelpurnar inni í bílskúr þegar hremmingarnar dundu yfir. Vesalings Ásdís Karen var dauðhrædd - hélt þetta væri einhver maður með allan þennan hávaða og var illa huggandi í langan tíma á eftir. Hræðslan kom ekki yfir Evu Þórey fyrr en seinna og þurfti mikið að leita í skjól og öryggi foreldra sinna.

Ingvi Hrafn Jónsson var í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni ÍNN þegar suðurlandsskjálftinn reið yfir. Sá þetta á vísir.is en set myndbandið skömmustulaust hér inn þar sem það er hýst á YouTube

Ein athugasemd við “Skjálftinn í beinni”

  1. Stella says:

    Já skjálftinn fór ekki framhjá mér :/ enda vinn ég glerhýsingu með þar til gerðum látum ……

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE