Ásdís Karen vaknaði á mánudagsmorgun með bullandi hita. Var fárveik um daginn og nóttina, með hátt í 40°c. Undarleg veikindi því hún var algerlega einkennalaus á sunnudaginn, ekki svo mikið sem hortaumur eða hósti. Í gærmorgun var hún orðin hressari og var hitalaus í gærdag en mældist með tæpar 38°c í gærkveldi. Höldum henni því heima líka í dag.
Grillaði kjúklingabringur í gær undir áhrifum frá ástríðukokkinum Ragnari Frey. Pæklaði bringurnar ekki en bjó til marineringu úr Honey Mustard BBQ sósu frá Hunts, Extra Virgin olive oil, hunangi og salt og pipar. Reyndi mig við dressinguna sem Ragnar Freyr gefur upp í færslu sinni en átti ekki nákvæmlega sömu hráefni – sósan reyndist allt í lagi, ekki meira en það. En bringurnar voru eðal. Ég fór að ráðum Ragnars og grillaði þær fyrst við óbeinan hita (eða á efri grind), henti þeim síðan á neðri grindina til að fá authentic grill lúkk og bragð.
Helena fer í seinna prófið sitt á morgun fimmtudag og er þá prófatörninni lokið þessa önnina.
Sumarið framundan og ég á enn eftir að hleypa gæðingnum (fellihýsinu) út úr bílskúrnum. Þegar hvíti halinn stendur tignarlega í heimkeyrslunni, þá er fyrst komið sumar.









Og bragðið er ógleymanlegt, takk fyrir mig, namm!