Ég er alveg eyðilagður að hafa misst af skjálftanum í gær. Var nýfarinn úr vinnunni og var að keyra miklubrautina við hlíðarnar, svona um það bil, þegar skjálftinn reið yfir. Fann ekkert fyrir þessu en fann fyrir nokkrum eftirskjálftum seinnipartinn og í gærkveldi. Fann tvo pínu kippi þegar ég snæddi seríosið í morgun.
Helena var úti á snúrum og stelpurnar inni í bílskúr þegar hremmingarnar dundu yfir. Vesalings Ásdís Karen var dauðhrædd - hélt þetta væri einhver maður með allan þennan hávaða og var illa huggandi í langan tíma á eftir. Hræðslan kom ekki yfir Evu Þórey fyrr en seinna og þurfti mikið að leita í skjól og öryggi foreldra sinna.
Ingvi Hrafn Jónsson var í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni ÍNN þegar suðurlandsskjálftinn reið yfir. Sá þetta á vísir.is en set myndbandið skömmustulaust hér inn þar sem það er hýst á YouTube.
















Nýlegar athugasemdir