Gluggagægir

Þegar ég sat við tölvuna áðan og forritaði eins og vindurinn sá ég hreyfingu fyrir utan gluggann hjá mér. Einhver forvitinn lá á glugganum og starði inn. Skrýtið, því ég er jú á fimmtu hæð í byggingunni!

Þegar að var gáð var þetta sá forvitni og ég smellti mynd af dónanum með über-myndavéla-símanum.

Hann varð eitthvað hvumpinn og hrökklaðist í burtu þegar hann sá að ég var að afla sönnunargagna gegn honum.

- J

Ein athugasemd við “Gluggagægir”

  1. Bebba says:

    Hehe, er það nú dóninn! Ætli þetta hafi verið njósnari andstæðinganna dulbúinn sem fugl?

    En hvar ertu að vinna Jón minn? Minnir á hillbillí hverfi í New York eða eitthvað! hehe :)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE