Færslur í April 2008

Gleðilegt sumar

Stelpurnar fengu ný hjól í sumargjöf og vakti það mikla kátínu hjá þeim báðum. Í dag eftir leikskóla fórum við einn hring með Ásdísi til að vígja hjólið almennilega. Eva Þórey var of upptekin með vinum sínum til að koma með okkur í þetta sinn. Ásdís var ekkert smá ánægð með hjólatúrinn og var því ekki alveg á því að fara af hjólinu þegar við komum til baka.

Ásdís Karen á hjólinu

 

Annars er það bara próflestur hjá mér framundan þar sem prófin eru að byrja, þannig að ég verð ekkert ýkja skemmtileg næstu daga. Hlakka mjög til að vera búin og komast í sumarfrí og þurfa ekki að eyða öllum kvöldum í lærdóm. Það styttist í það Wink

Á morgun erum við fjölskyldan svo að fara í afmæli til hennar Kristjönu Eirar en hún er nýorðin 3 ára. Hlökkum til Smile

Human

Til að koma blóðinu af stað á keyrslunni til Reykjavíkur á morgnana set ég iðullega á Human með Carpark North, kick ass keyrsla þar á ferð. Hækka í græjunum þannig að Fabian hristist og skelfur.

Gæsahúðin sprettur fram, adrenalínið keyrist upp og ég glaðvakna.

Góðir hálsar, skrúfið upp hljóðstyrkinn og hlýðið á Carpark North:

Vorið kallar

Skruppum til ömmu og afa á Setberginu í dag og stelpurnar fóru í heita pottinn, í fyrsta og örugglega ekki það síðasta, skiptið í vor/sumar.

Búið að vera fínt veður í dag, þó við hefðum ekkert kvartað ef sólin hefði látið sjá sig.

Stelpurnar léku á alls oddi í pottinum og þegar þær komu uppúr beið amma með rjúkandi vöfflur með sultu og rjóma.

Helena er búin að vera sveitt í verkefnavinnu í nánast allan dag og ég að taka vorhreingerninguna á grillinu. Mikið afskaplega er það leiðinlegt. Það er þó bót í máli að á eftir verður fírað upp í því og grillaðir börgerar.
Með káli…
Og papriku…
Og fetaosti…

Jömmí.

Andlitslyfting

Komiði sæl og blessuð (sagt eins og Jón Ársæll).

Ég er búinn að vera föndra við að fríska upp á vefinn okkar í nokkurn tíma. Ég þarf einhvern veginn alltaf að breyta til.

Vona það verði jafnskemmtilegt fyrir ykkur að skoða vefinn og áður – eða jafnvel ögn skemmtilegra.

Læt fylgja hérna með grípandi smell með dönsku hljómsveitinni Alphabeat:

15 ár

Þann 12. apríl 1993 spurði ég Helenu nokkra Jóhannsdóttur “Viltu byrja memmér?”, þá á seytjánda aldursári.

Laugardaginn síðasta, 12. apríl 2008, voru liðin fimmtán ár frá nóttinni örlagaríku.

Og við gleymdum því.

Vinsælasta lagið

Á þessari skemmtilegu síðu getur þú fundið hvaða lag var vinsælast á Billboard listanum daginn sem þú fæddist. Ég tók saman fyrir fjölskylduna og þetta eru lögin:

9. nóvember 1976 – Tonight’s the night (Gonna Be Alright) með Rod Stewart
8. mars 1977 – Love Theme from “A Star Is Born” (Evergreen) með Barbara Streisand
25. ágúst 2001 – Fallin með Alicia Keys
8. júní 2005 – Lady Marmalade með Christina Aguilera, Lil Kim, Mya og Pink

Tékkaðu á þínum afmælisdegi.

- J

(Fann síðuna á bloggi Einars Arnar – eoe.is)

Leikið í snjónum

Blessuð börnin hafa gaman af snjónum.

Álit mitt á hvíta ógeðinu er ekki prenthæft. Að minnsta kosti ekki hér.

Snjókall

Hvíta ógeðið hlóðst upp hjá okkur í dag og vitanlega var ekkert annað hægt að gera í stöðunni nema reyna hafa gaman af þessu.

Gaurarnir að ofan urðu til í dag.

Gluggagægir

Þegar ég sat við tölvuna áðan og forritaði eins og vindurinn sá ég hreyfingu fyrir utan gluggann hjá mér. Einhver forvitinn lá á glugganum og starði inn. Skrýtið, því ég er jú á fimmtu hæð í byggingunni!

Þegar að var gáð var þetta sá forvitni og ég smellti mynd af dónanum með über-myndavéla-símanum.

Hann varð eitthvað hvumpinn og hrökklaðist í burtu þegar hann sá að ég var að afla sönnunargagna gegn honum.

- J

Leiðin að hjarta barns

Við Ásdís Karen vöknuðum á undan öðrum fjölskyldumeðlimum í morgun.

Ég tók til skálar, skeiðar, mjólk og morgunkorn og setti á eldhúsborðið.

Þegar sú stutta sá að á borðinu voru m.a. Coco Pops og Lucky Charms leit hún djúpt í augun á mér og sagði: “Góður pabbi”.

Jahá.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE