Færslur í March 2008

Gleðilega páska

íslensk tónlist

Besta íslenska tónsmíð, hingað til, er án efa “Viðrar vel til loftárása” með Sigur Rós. Tóndæmi.

- J

(tók einhver eftir því að ég mundi eftir “sk” reglunni í titli þessarar ágætu færslu?!?!)

Heiða þrítug

Litla systir mín varð þrítug í dag, sem segir bara eitt, ég hlýt að vera orðin eldri. Auðvitað kíktum við í heimsókn til hennar á sjálfan afmælisdaginn og fengum þessar dýrindis kræsingar, takk fyrir okkur. Til hamingju með afmælið Heiða og njóttu þess að vera þrítug :)

Annars erum við á leiðinni til Grindavíkur á morgun í annað afmæli en Jenný Geirdal er að halda upp á 6 ára afmælið sitt. Langt síðan við höfum kíkt til Grindavíkur. Svo er Eva Þórey að fara í þriðja afmælið á laugardaginn en þá á besta vinkona hennar afmæli, hún Dagrún Inga. Þannig að það er nóg að gera í afmælum þessa páskahelgi :)

Gleðilega páska og hafið það sem allra best um helgina.

-Helena

Lasarusar

Ásdís Karen er búin að vera lasin síðan á aðfaranótt mánudags, með hita og almenn óþægindi sem fylgja slíkum veikindum. Eva Þórey var að veikjast nú í nótt.

Það er eins gott að Heilsutvennan frá Lýsi geri sitt gagn. Ég nenni ekki að veikjast.

Þrjátíuogeins

Til hamingju með afmælið elsku mamma okkar (…og unnusta :o ) )

Við brugðum okkur bæjarferð og fengum okkur að borða á Ruby Tuesdays, þar sem meðfylgandi mynd var tekin af afmælisbarninu gæða sér á kræsingum.

Knús og kossar,
Jón Óskar, Eva Þórey og Ásdís Karen

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE