Færslur í January 2008

Snjóhús

Það er nú heldur betur búið að snjóa hér síðustu daga. Snjórinn er orðinn svo mikill að við gátum búið til snjóhús á föstudaginn. Ár og öld síðan við bjuggum til snjóhús síðast. Tókum þessa mynd á föstudaginn (stelpurnar eru þarna inni en sjást lítið) en Jón Óskar er heldur betur búinn að betrum bæta snjóhúsið í dag. Það er kominn stígur frá húsinu okkar og í snjóhúsið…hehe. Þannig að það má nú segja að við séum komin með þetta fína útihús…spurning hvað það fær að standa lengi.

Annars er það að frétta að Ragna, Beggi og Arnór Daði voru að flytja inn í húsið sitt um helgina og óskum við þeim innilega til hamingju með það.

Áramótamyndir komnar inn

Áfram Ísland

Tók þessa mynd af stelpunum þegar landsleikur Íslands og Svíþjóðar var í imbanum. Þær halda báðar á íslenska fánanum, náðist ekki á mynd í þessu skoti.

Sætastar í snjónum :)

Snjór, snjór, snjór

Stelpunum fannst bíllinn okkar frekar fyndinn í morgun þegar við komum út, það var alveg eins og hann væri með barn í maganum sagði Eva Þórey. Þær voru sko mikið sáttar við allan þennan snjó sem hafði komið um nóttina og Ásdís byrjaði á því að spyrja hvort við ættum ekki að búa til snjókarl. Það var sko enginn tími til að fara í skóla og leikskóla þennan morguninn. Enda er snjórinn þvílíkt ævintýri fyrir þessa krakka þó við fullorðnu metum hann ekki eins mikið, alla vega ekki í þessu magni.

Áramótamynd

Hér er ein mynd frá áramótunum, sérstaklega fyrir Rögnu. Ég veit…ég er allt of léleg að setja inn myndir, það er bara svo mikið að gera á stóru heimili :)

VORUM AÐ SETJA INN MYNDIR FRÁ AÐFANGADEGI OG JÓLADEGI!!!

Eilítið öppdeit

Erum búin að vera afar andlaus þegar kemur að skrifum hingað inn. Bæði höfum við ítrekað komið hingað inn til skrifta en hörfað jafn harðan aftur með skottið á milli lappanna.

En..

  • Jólin voru frábær, fengum margt fallegt í jólagjöf og stelpurnar auðvitað heilan helling
  • Áramótin voru að sama skapi afar góð. Fórum að venju í boð hjá mömmu og pabba þar sem horft var á skaupið og flugeldum skotið á loft. Ekkert nýtt svo sem ;o)
  • Keyptum okkur Wii leikjatölvu fyrir jól, forláta hvít jólakirkja féll í gólfið og brotnaði þegar Eva Þórey fór hamförum í boxi. Að öðru leyti snilldar græja
  • Fórum í eins árs afmæli hjá Ísabellu Dís síðasta sunnudag
  • Skiptum 2 jólgjöfum í Max og fengum okkur loksins almennilega tösku undir myndavélina
  • Tókum heilan helling, jafnvel glás, af myndum yfir hátíðarnar sem vonandi birtast í albúminu innan skamms
  • Helena er nú í vettvangsnámi í leikskólanum á Eyrarbakka
  • Eva Þórey missti tönn númer 2

Vona ég sé ekki að gleyma einhverju mikilvægu – það kæmi þó ekki á óvart. Skrifa þá bara nýja færslu, öllum til ánægju og yndisauka.

- J

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE