Frændsystkinin Eva Þórey, Ásdís Karen, Bergur Ómar og Elva komu saman hjá ömmu og afa á Setbergi í dag til að baka og skreyta piparkökur.
Það voru teknar myndir.



Frændsystkinin Eva Þórey, Ásdís Karen, Bergur Ómar og Elva komu saman hjá ömmu og afa á Setbergi í dag til að baka og skreyta piparkökur.
Það voru teknar myndir.



Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár lesendur góðir.

Jólakveðjur frá fjölskyldunni.
Við skreyttum jólatréð í gær. Stelpurnar biðu (ó)þolinmóðar á meðan ég setti seríurnar á og græjaði – áður en annað skraut mátti koma á. Þeim fannst þetta afskaplega gaman – reyndar svo gaman að við Helena þurftum að fara yfir tréð eftir á og dreifa eilítið betur úr skrautinu.


Samkvæmt trúnaðarákvæði má ekki birta myndir af tréinu fullskreyttu fyrr en eftir jól.
Við fórum í bíó sl. laugardag í boði FSLÍ (starfsmannafélagið í vinnunni). Boðið var á forsýningu á myndinni Skoppa og Skrítla í bíó.
Prógrammið hófst kl. 13:30 þegar Skoppa og Lúsí tóku á móti börnunum í Smárabíó. Þær buðu upp á myndatökur með börnunum en Ásdís Karen guggnaði og þorði ekki. Myndin er um það bil klukkutími að lengd og var meira að segja tekið hlé og alles – alvöru stöff.
Ásdís Karen var ekki sátt þegar myndin var búin – fannst hún of stutt og vildi meira. Evu Þórey fannst jú alveg gaman sko en fannst sennilega meira varið í poppið og kókið.
Þau eru nú ekki mörg, en þau leynast inn á milli; skemmtilegu jólalögin.
Var að horfa á Logi í beinni rétt áðan og þá rifjaðist upp fyrir mér jólalagið sem Sprengjuhöllin tók í þættinum fyrir ári síðan.
Það er skemmtilegt jólalag:
Viti einhver hvar/hvort hægt sé að festa kaup á hljóðritun af þessu lagi einhversstaðar má hinn sami láta mig vita með kommenti.
Takk.
Mikið held ég það sé gaman að vera jólasveinn og gefa í skóinn.
Ég man þegar ég var peyji hve áköf eftirvæntingin var að fá í skóinn – mikið afskaplega var stundum erfitt að sofna. Gleðin var innileg þegar skórinn var skoðaður morguninn eftir þar sem glaðningur frá jólasveininum beið, ef maður var þægur.
Við bræðurnir fengum reyndar allir í skóinn á aðfararnótt aðfangadags þangað til við fluttumst að heiman og alltaf það sama: kók og prins.
Frá sömu jólasveinum og höfðu glatt okkur í bernsku.
Læt fylgja með gamla tuggu; jútjúb vídjó af rokkaðasta jólhúsi sögunnar:
Það var ekki vinnufriður hérna fyrir stundu þegar “tugir manna” ruddust hingað inn til að mótmæla. Hópurinn stappaði í gólfið og kyrjaði sífellt “Spillinguna burt!”. Þau hurfu á braut friðsamlega þegar löggimann mætti á svæðið – heyrðist á þeim að stefnan væri sett á höfuðstöðvarnar í austurstræti.
Sjá: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/17/ruddust_inn_i_landsbankann/
Hressandi aksjón.

Fórum til Vestmannaeyja um síðustu helgi í skírn hjá litlu hans Ómars og Jessýjar. Litla skvísan fékk nafnið Magnea Evey, fallegt nafn. Gaman að koma til Vestmannaeyja en ekki eins gaman að ferðast þangað, alla vega ekki með Herjólfi. En það var ýmislegt brallað í Vestmannaeyjum, hittum ömmu Erlu, skoðuðum eyjuna aðeins og fórum út að borða.

Eva Þórey og Magnea Evey
Nýlegar athugasemdir