Helgin

Róleg helgi. Helena var að læra alla helgina svo það var lítið gert. Dæmigert að þegar maður hefur tíma til að sitja yfir enska boltanum þá er landsleikjahlé, búhú.

Helena og Eva Þórey fóru á bíngó á Eyrarbakka í gær. Eva Þórey var lukkuleg í fyrri hálfleik og vann hún kastala, golfsokka, golfhanska og fimmþúsund króna inneign í golfverslun. Ekki slæmt á fyrsta bíngó!

Læt fylgja með mynd af systrunum við útsýnispallinn í Þorlákshöfn. Við fórum eftir skóla/leikskóla föstudaginn 9. nóv og tókum nokkrar myndir á nýju myndavélina :o )

5 athugasemdir við “Helgin”

  1. Bíddu nú hægur!
    Ný myndavél, hver var niðurstaðan?

  2. Æðisleg mynd af æðislegum systrum:)
    Kv. frá Akureyri

  3. Jón Óskar says:

    @Örn: Nikon D40x var það heillin. Eftir heilmiklar pælingar var þessi elska keypt á góðu verði í Elko, ég tímdi hreinlega ekki að fara í Nikon D80 þó mig langaði það – munaði heilmiklu á.

    @Sigga Hulda og Alrún Elín: Takk fyrir! Kveðja frá okkur sömuleiðis til Akureyrar!

  4. Heiða says:

    Ekkert smá flott mynd :)

    Hvernig verða jólakortin í ár hjá B28 hmmmmmm.

  5. Stella says:

    Kvitt kvitt yfir innlitið mitt =O)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE