Ég sat á “skólabekk” alla síðustu viku þar sem bankinn hélt námskeið fyrir okkur á Grand Hótel. Við vorum um 50 af hugbúnaðarsviðinu sem sátum námskeiðið sem fjallaði um nýja (eða nýlega) tækni í forritunarumhverfinu sem við vinnum í; Windows Communication Foundation (WCF) ef einhver hefur áhuga á því.
Þetta var fín upprifjun á skólaárunum, sátum undir fyrirlestrum frá 9 – 17 og sjaldan hefur jafn hart verið barist við missi á meðvitund. Ef ég hefði ekki setið eins framarlega og ég gerði er afar líklegt ég hefði hallað undir flatt og slefað í svefnmóki.
Anyhoo, Eva Þórey missti fyrstu tönnina á föstudaginn. Ég var búinn að bjóða svimandi háar fjárhæðir í verkið að kippa tönninni úr en varð ekki kápan úr klæðinu. Eva Þórey hnerraði hressilega í leikfimitíma og út flaug tönnin. Hún fékk þó sanngjarna skaðabótagreiðslu frá tannálfinum á aðfararnótt laugardagsins.
Fórum í 2 afmælisveislur á laugardag þegar Elva og Eiður Már héldu upp á afmæli sín. Fórum einnig í afmælisveislu helgina áður en þá átti Bjarki bróðir hennar Helenu afmæli. Það er alltaf gaman þegar fjölskyldan hittist og veislurnar voru engar undantekningar þar á. Horfðum meðal annars á íslenska landsliðið í grasspyrnu gera upp á bak á móti lettum – hressir þessir lettar alltaf.
Hjónaleysin lágu því afvelta í sófanum á laugardagskvöldið og horfðu á rómantíska gamanmynd sem var misgóð.
Annars blóðlangar mig að sjá Good Luck Chuck, Knocked Up og The Heartbreak Kid - nýjasta afrek Farrelly bræðra.
Nýlegar athugasemdir