Færslur í September 2007

Líf og fjör í Básahrauni :)

Það var nú heldur betur fjör að koma heim úr vinnu í gær. Þegar við mæðgur vorum komnar inn í gang missti Ásdís bók ofan á puttana á Evu Þóreyju, sem fór að gráta, og í því lokar Ásdís útidyrahurðinni og beint á puttana á sér. Þær voru grátandi í sitthvoru horninu og ég vissi vart hvað ég ætti að gera. Ég sneri mér að Ásdísi því ég vissi að það var aðeins alvarlegra og bað Evu Þóreyju að koma til mín en þá grét hún ennþá meir því henni fannst sárið hennar Ásdísar svo hræðilegt. Þegar grátinn ætlaði aldrei að linna ákvað ég að kíkja með Ásdísi á læknavaktina þar sem hún gat ekki hreyft puttana og það blæddi vel úr því. Þegar við komum á læknavaktina var hætt að blæða og hún gat orðið hreyft puttana þannig að það var auðvitað ekkert gert. Eins og þetta virtist svakalegt hérna heima, ég hélt að hún væri puttabrotin og svo blæddi svo svakalega úr sárinu,þá varð þetta að nánast smáskeinu (en sem betur fer).

Annars er allt gott af okkur að frétta. Ég fór í foreldraviðtal í skólanum og er  Eva Þórey að standa sig svakalega vel þar, er akveg  fyrirmyndarnemandi. Ásdís er öll að koma til í leikskólanum og er bara glöð þessa dagana að fara í leikskólann. Hún á samt eftir að venjast því að ég sé að vinna þar. Hún heldur alltaf þegar ég birtist að við séum að fara heim. Ég hef verið að vinna svolítið inn á hennar deild og hún er alltaf að spyrja mig hvort við séum ekki að fara heim ( skilur ekkert í því af hverju mamma sín þarf alltaf að hanga þarna inn á deild á meðan aðrir foreldrar geta bara farið strax). 
Það má næstum því segja að ég sé einstæð þessa dagana þar sem Jón Óskar er farin á morgnanna þegar við vöknum og kemur svo heim á kvöldin rétt til að sofa. Það er svo mikið að gera í vinnunni hjá honum að stelpurnar sjá hana nánast bara um helgar því þær eru sofnaðar þegar hann kemur heim. Enda eru þær farnar að sakna hans ógurlega.

Síðast ætla ég að óska honum Bergi Ómari til hamingju með afmælið í dag en hann er orðinn eins árs.

og eitt enn….Til hamingju með litlu prinsessuna Berglind, Gúndi og Hákon Fenrir

- Helena 

Amma Snjólaug á afmæli í dag

Til hamingju með afmælið elsku amma okkar.

Þínar stelpur, Eva Þórey og Ásdís Karen

Afsakið hlé

Mig langar að biðja þá fjölmörgu sem skoða þennan vef daglega afsökunar á bileríi. Ég ímynda mér að þið hafið misst svefn og skolfið á beinunum af fráhvarfseinkennum og eftirvæntingu um hvað myndi birtast næst hér (við erum nefnilega svo skrambi dugleg að uppfæra!).

Ég er nokkuð viss um að 5-10 manns hafi verið reknir hjá hýsingaraðila þessa ágæta vefs sem á höfuðstöðvar í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Einföld heimskupör og vankunnátta þessara blessuðu álfa í þjónustudeildinni (service support) urðu þess valdandi að þúsundir manna á Íslandi og víðar um alheiminn fengu upp ljóta síðu með hundleiðinlegum villutexta í stað spennandi frásagna frá ábúendum í B28.

Réttlæt refsing væri að þessir idjótar fengju ekkert að éta nema kæstan hákarl með hömsum og rófustöppu héðan í frá. En þar sem erfitt er að útvega kæstan hákarl í ameríkunni verð ég að láta mér nægja að bölva þeim í hljóði og senda vel útilátin hate-mail.

By the way, ég lagaði draslið sjálfur á 5 mínútum eftir að hafa gúgglað stutta stund. Mér finnst það bara lágmarksþjónusta að hafa hýsinguna í lagi og geta leyst úr einföldum vandamálum þegar maður blæðir í þetta mörghundruðkrónum á ári.

Annars erum við alveg ljómandi hress.

– J

Barnabörnin á Þykkvaflöt

Kristjana Eir, Ásdís Karen, Sara Margrét, Arnór Daði, Aron Elvar, Eva Þórey og Sylvía Björk

Black Eyed Pea

Eva Þórey fékk frisbídisk í andlitið í gær í ærslafullum leik hennar og Sigurðar Gísla vinar hennnar. Í gærkvöld var hún komin með myndarlega bólgu skreytt fagur-fjólubláum lit fyrir neðan vinstra auga. Þetta verður eflaust kveikja að hetjulegri sögu í skólanum í dag.

Þar sem haustið nálgast eins og óð fluga og rökkrið varir lengur er tilvalið að lyfta sér upp og skoða brot af öllu því glensi sem tiltækt er á lýðnetinu, gjörið svo vel:

CSI London Crime Scene

Kynþokki og tónlist, deddlí blanda

Og til að ljúka færslunni, dash af frábærri tónlist: Arcade Fire – No Cars Go

- J

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE