Færslur í August 2007

Arnór Daði litli frændi

Þetta var sko viðburðarrík helgi hjá okkur fjölskyldunni. Á föstudaginn hélt Eva Þórey afmælisveislu fyrir vini sína það var heldur betur fjör. Á laugardaginn trúlofuðu Ragna og Beggi sig ásamt því að láta skíra litla prinsinn þeirra og fékk hann nafnið Arnór Daði, fallegt nafn og fer honum svakalega vel. Á sunnudeginum héldum við afmælisveislu fyrir fjölskylduna sem telur um 40 mannst þannig að það er ekki hægt að segja annað en að um stórveislu hafi verið að ræða. Eva Þórey fékk fullt af gjöfum og var alveg í skýjunum alla helgina.

Á sunnudagskvöldið fórum við á Eyrarbakka að kveðja Heiðrúnu systur og Söru og Sylvíu dætur hennar en þær voru að fara heim til sín til Ítalíu. Það er alltaf jafn erfitt að kveðja þær því við sjáum þær svo sjaldan. Eva Þórey vissi ekkert hvernig hún átti að vera og kvaddi þær örugglega 10 sinnum. Svo þegar við vorum komin heim sagði hún að hún væri hálf sorgmædd það hefði verið svo sorglegt að kveðja þær, það kom næstum því tár sagði hún.

Annars er það að frétta að Eva Þórey er auðvitað byrjuð í skólanum og líkar alveg svakalega vel. Ásdís Karen er byrjuð í leikskóla og gengur það mjög vel. Hún er svolitið lítil í sér yfir daginn en ekkert til að hafa áhyggjur af. Við höfum báðar mjög gott af þessu þar sem við erum alltof háðar hvor annari. Hún þarf bara að venjast því að vera annarsstaðar en hjá mömmu sinni. Hún hefur ekki verið mikið í pössun nema hjá ömmu sinni hér í Höfninni og henni líkaði það auðvitað alltaf vel.

Þar sem stelpurnar eru byrjaðar í skóla og leikskóla er húsmóðirin á heimilinu orðin ein heima og er það ekkert smá skrítið. Ég byrja í skólanum í næstu viku og þá verður nóg að gera hjá mér. Svo er aldrei að vita nema einhver vilji ráða mig í vinnu með skólanum svo ég eigi ekki eftir að drepast úr leiðindum hér heima (ekki það að það sé lítið að gera á þessu heimili heldur vantar félagsskapinn).

Endilega verið svo dugleg að kvitta því það er svo gaman að sjá að einhver sé að fylgjast með.

Kveðja, Helena

Eva Þórey 6 ára í dag

Tíminn er ótrúlega fljótur að líða, litla stelpan okkar orðin 6 ára og byrjuð í skóla. Í gær fundum við svo fyrstu fullorðinstönnina í neðri góm og var Eva Þórey ekkert smá stolt. Hún er reyndar ekki búin að missa neina tönn ennþá en það ætti að styttast í það núna.

Elsku Eva Þórey okkar til hamingju með 6 ára afmælið!

Mamma, pabbi og Ásdís Karen

Ragna Kristín á auðvitað líka afmæli í dag en þær frænkur deila þessum degi saman.  Elsku Ragna Kristín til hamingju með daginn. Litli prinsinn þeirra Rögnu og Begga verður svo skírður síðar í dag og hlökkum við mikið til.

Elsku Ragna og Beggi, til hamingju með prinsinn

Ragna systir eignaðist strák í nótt eða nákvæmlega klukkan tvær mínútur yfir miðnætti, hann var 15 merkur og 52 cm. Hún var búin að vera með verki síðan á föstudagskvöld en prinsinn hefur greinilega verið ákveðinn í að koma í heiminn þann 15. ágúst. Flottur dagur þar sem það eru einungis 10 dagar á milli þeirra mæðgina en Ragna á afmæli 25. ágúst. Þetta var víst ekkert auðveld fæðing og endaði með því að hann var tekinn með sogklukku og er því með mikil sár á höfðinu. En hann er ekkert að láta það á sig fá heldur er hinn rólegasti og sefur bara.

Skoppa og skrítla

Eva Þórey og Hara systur

Sæt

Frænkurnar bleiku

Flaut

Menn gerast varla hressari en þetta: http://www.youtube.com/watch?v=zQQ5sEOhbjQ

Hamragarðar Part Deux

Fórum í útilegu síðustu helgi með Gesti, Dai og fjölskyldu til Hamragarða sem við heimsóttum fyrr í sumar. Fengum príma tjaldstæði við lækinn sem rennur úr Gljúfrafossi (Gljúfrabúa) í fínu skjóli fyrir vindum. Lögðum í hann á laugardagsmorgun og rúntuðum fyrst í Fljótshlíðina en þegar ljóst var að þar var lítið skjól hörfuðum við og ákváðum þess í stað að á við Hamragarða.

Á laugardagskvöldið fylgdumst við með flugeldasýningunni á Þjóðhátíð í Eyjum og fengum brekkusönginn á sunnudagskveldinu nánast í beint í æð – þar sem ábúendur á einkajörðinni við hliðina blöstuðu beinu útsendinguna á Rás 2 í fínu græjunum sínum. Kíktum í sund á Hvolsvelli og ef ég væri sardína hefði mér sjálfsagt liðið vel í yfirfullum pottunum en svo var ekki og við stoppuðum stutt við.

Hotpoint þvottavélin gaf upp öndina fyrir helgi eftir aðeins 6 ára þjónustu. Eftir eilíft vesen á vélinni tímdum við ekki að borga áætlaðan viðgerðakostnað svo það var tekin ákvörðum um að festa kaup á nýrri. Fyrir valinu varð forláta Siemens þjarkur en fyrir eigum við heimasíma og ísskáp af sömu sort sem hafa ekki enn slegið feilpúst (sjö níu þrettán).

Hafnardagar í Þorlákshöfn um helgina og hellingur að gerast. Dagskránna má skoða hér.

Hef verið með nostalgíu undanfarna daga og verið með Carcass í heddfónum í vinnunni. Má ekki hlusta á svona ruddarokk heima ;o) Annars get ég mælt með Zeitgeist með Smashing Pumpkins og Our Love To Admire með Interpol - hressandi skífur báðar tvær.

- jón óskar

Veiðitröll

Eva Þórey er sannkallað veiðitröll. Við fórum með mömmu og pabba og Gesti Þorbirni í Ölfusárósinn í gær. Eva Þórey fékk fisk eftir um það bil klukkutíma, 1.1 punda sjóbirting. Pabbi fékk hálfspunda titt seinna um daginn og þá er aflinn upptalinn.

Það eina sem ég uppskar var sólbruni í andliti. Misnotaði því alóvera kremið í gærkveldi.

Myndin sem fylgir greininni er af veiðmanninum og bráðinni. Því miður fékkst veiðimaðurinn ekki til þess að sitja nær fengnum þó hann væri dauðrotaður.

- jón óskar

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE