Mér varð á í messunni þegar ég tók upp vídjó í hjónavígslu Heiðu og Egils síðastliðinn laugardag. Þegar hjúin gengu að altari til að staðfesta heit sín fannst mér góð hugmynd að fara nær og ná mynd þannig það sæist í andlit þeirra.
Presturinn rak mig niður með þjósti og ég rauk undir eins í sætið mitt eins og skammaður hvolpur og rauður bjarmi lýsti upp nánasta umhverfi mitt í góðan hálftíma á eftir.
Messudólgur var nýyrði sem var fundið upp í veislunni á eftir. Og háleitar hugmyndir varðandi raunveruleikaþátt um messudólga komu upp.
Sjérann var því messudólgur á laugardaginn var. Hef þó ekki enn verið titlaður flugdólgur – bara spurning um tíma.












Nýlegar athugasemdir