
Eva Þórey útskrifaðist af leikskólanum Bergheimum í gær, í haust fer hún loksins í “stóra skólann”. Hún var yfir sig montin og fannst hún vera orðin pínu fullorðin – þar sem hún var nú einu sinni að útskrifast! Þegar húsbóndinn kom heim úr vinnu í gær byrjaði skvísan á að tilkynna þetta hástöfum og tók á móti pabba sínum með kórónuna sem hún fékk við tilefnið á höfðinu. Stoltið var það mikið að kórónan var ekki einu sinni tekin niður þegar við fórum í Bónus!
Eva Þórey hættir svo í leikskólanum um mánaðarmótin maí – júní og tekur þá við ævintýraríkt sumarfrí.
Til hamingju með útskriftina elsku Eva Þórey okkar!!
Pabbi, mamma og Ásdís Karen.









Nýlegar athugasemdir