Færslur í March 2007

Það er kominn mars

Jæja komin tími til að skrifa eitthvað hér!! Við erum hér heima allar þrjár mæðgurnar þar sem Ásdís Karen er lasin og Eva Þórey hálf tæp sjálf þannig að hún fékk að vera heima. Við héldum smá boð fyrir fjölskylduna í gær þar sem húsmóðirin á heimilinu varð þá þrítug (en tvítug í anda). Takk kærlega fyrir mig í gær :)
 
Ásdís Karen er farin að tala heilmikið í tveggja orða setningum og er nýfarin að syngja lagið gulur, rauður, grænn og blár. Hún hefur jafn gaman af því að syngja eins og systir sín enda eru þetta framtíðar söngkonur sem við eigum.
 
Eva Þórey er á fullu alltaf í fimleikunum og má varla missa úr æfingu því henni finnst svo gaman. Hún er að spá í að fara að æfa fótbolta næsta haust líka. Hún þarf alltaf að vera á fullu, stoppar varla við hérna heima.
 
Það er búið að vera flakk á okkur hjónaleysunum undanfarið en þó í sitthvoru lagi. Ég fór á Akureyri í skólann í febrúar í nokkra daga og svo er Jón Óskar nýkominn frá London en hann fór þangað á ráðstefnu á vegum vinnunnar. Ég þarf svo að fara aftur norður í mars og síðan í apríl.
 
Hún Ragna systir mín á von á barni í sumar :) Þegar Eva Þórey fékk fréttirnar þá breytti hún bara strax um umræðuefni og vildi ekkert ræða þetta. Seinna fór hún að spyrja mig betur út í þetta hvort Ragna væri virkilega með barn í maganum. Fyrir henni er Ragna svona stóra systir sem hún lítur mikið upp til og átti mjög erfitt með að sjá það fyrir sér að hún gæti verið með barn í maganum. Svo spurði Eva Þórey mömmu sína (mig) hvernig barnið kæmist inn í magann þá breytti mamman um umræðuefni. Hvar ætli barnið læri þetta eiginlega :)
 
Ég var að horfa á video af Evu Þóreyju þegar hún var á sama aldri og Ásdis er núna og ég er ekki frá því að þær séu svolítið líkar. Ásdís með meira hár og Eva Þórey með stærri augu en nánast sama formúlan. Þyrftum að setja inn mynd af Evu Þóreyju á þessum aldri hér inn við tækifæri.
 
Takk fyrir að fylgjast með okkur þið sem nennið enn að bíða eftir færslunum okkar :)
En fyrir ykkur þá reynum við að bæta okkur í þeim málum.
 
ÉG SETTI INN NÝJAR MYNDIR
 
-Helena
 
 
Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE